Maðurinn á götunni og alheimspólitíkin.


Ég man vel eftir Vietnam stríðinu, sem var stöðugt fréttaefni um árabil.  Um hvað snérist sú styrjöld, að stöðva framrás kommúnisma í heiminum?  Þegar á reyndi þurfti nú ekki að drepa fólk þess vegna sá ismi, framdi sjálfsmorð.
Líbanon var land í stöðugum fréttum um árabil.  Um hvað snérist sú styrjöld?  Nöfn eins og Hisbolla, dundu í eyrum okkar.  Reyndar nafn sem nú rís aftur upp í Sýrlandi.
Írak og átökin fyrir botni Persaflóa, hver kannast ekki við þau stríð.  Sérstað þessara stríða er að þau voru meira og minna í beinni útsendingu. Tæknistríð, svona eins og tölvuleikir.  Já og til hvers?   Saddam var vondur kall, og fékk maklega málagjöld, en hefur betra tekið við. Svo virðist mér ekki vera.
Sýrland og borgarstyrjöldin þar. Um hvað er í reynd barist í þessu land, af hverju berjast þar bræður?
Boðskapur þessa pistils er, að þegar öllu er á botninn hvolft, vitum við ekkert um hvað raunverulega þessi átök hafa verið.  Hvaða hagsmunir hafa keyrt þetta áfram, vopnaframleiðendur. Til hvers öll þessi voðaverk hafa verið framin.  Getur maður sagst vera upplýstur maður þegar þessi mál eru rædd.  Ég segi langt í frá, hula brjálsemi og lyga, umlykur alla þessa atburði.
Hvað skyldi maður hafa eytt löngum tíma í að hlusta á og lesa um þess atburði. Tíma sem betur hefði verið varið í annað !!   Að ég tali nú ekki um sálartetrið, það  væri dauður maður, sem hefur ekki orðið fyrir neikvæðum áhrifum af þessum ósköpum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Jón Atli, þú skrifar góða pistla og hafðu þökk fyrir það.

Bloggvinar kveðja, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 14.9.2013 kl. 03:48

2 Smámynd: Jón Atli Kristjánsson

Takk Kristján, klapp á bakið í alltaf vel þegið, og haf þú sjálfur þökk fyrir það !!

Jón Atli Kristjánsson, 15.9.2013 kl. 21:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 42640

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband