15.3.2012 | 17:37
Gátu stjórnvöld gert eitthvað - Landsdómur.
Af framburði vitna er ljóst að mat manna á stöðu bankanna var ákaflega misjafnt. Vandinn var mönnum ekki ljós, hvorki að umfangi eða eðli. Af þeirri ástæðu einni var ekki hægt að ætlast til að stjórnvöld gerðu þær róttæki breytingar sem hefði þurft að gera. Hershöfðinginn var ekki á sviðnu. Að tækin voru ekki til er ekki sannfærandi, stjórnvöld gátu ef þurfti búið þau til.
Strax frá 2006-2007 var staða bankanna þannig að enginn þorði að gera neitt, óvarleg orð þýddu að þeir færu á hausinn, enda þá þegar komnir á hausinn. Allir voru í reynd fangar þessarar óbærilegu stöðu að dansa með í hrunadansinum. Allir höfðu þá skyldu að reyna að gera það besta hvaða logik sem það nú var.
Þær aðgerðir Seðlabankans, stórlán til Kaupþings nokkrum dögum fyrir hrun og tilboð um yfirtöku á Glitni, voru aðgerðir í hróplegri mótsögn við þá skýringu forráðamann bankans um að þeir hafi lengi varað við stöðu bankanna og yfirvofandi hruni. Ef þetta var svona ljóst, voru þessar aðgerðir ekki réttlætanlegar. Þessar tvær aðgerir voru einnig af þeirri stærð og eðli að teljast stærstu mistök þessarar sögu. Reyndar slapp mál Glitnis fyrir horn, sem ekki var Seðlabankanum að þakka.
Vitanleiðslur fyrir Landsdómi hafa varpað ljósi á margt áhugavert og hafa haft ótvírætt gildi. Þær sýna einnig þörfina á því að loka þarf þessu máli og atburðarás þessa tíma tekur æ meira á sig form sögu á kostnað raunveruleikans.
Ítarlegri rannsókn þessara mála gerir hlut bankamannanna sífellt verri. Þeir sjálfir og þeirra málstaður er öllum heillum horfinn. Þar fór fram glæpastarfsemi og siðferði sem vart á sinn líka.
Í stjórnmálum þarf að loka þessum kafla sögunnar. Enginn mun græða á áframhaldandi deilum. Það að auka virðingu og veg Alþingis, ætti að vera í dag sameiginlegt markmið allra sem þar starfa.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.