Úti í rigningunni.

Ég hafði sukkað í mataræði og vissi upp á mig skömmina. Sá fyrir mér hvernig keppirnir hossuðust á mér, ég gæti ekki látið sjá mig á mannamótum, og alls ekki í sundlauginni.
Sukkarinn á ekki upp á pallborðið. Hann ber það einfaldlega með sér að hafa ekkert lesið um hollustu, hreyfingu og almennt ábyrgt líferni. Það er ekki eins og upplýsingar um þetta liggi ekki fyrir, þú ert daglega minntur á þessa hluti.
Það nýjast sem ég lærði var að matur er eins og kynlíf. Hvorutveggja byggir á nautn og sukki. Ég gat alveg séð það fyrir mér að toppurinn á þessu væri matur og kynlíf saman. Einn góður hamborgari þegar allt er á fullri ferð !
Sukkið var sem sé staðreynd og eitthvað varð að gera. Ég klæddi mig þokkalega og arkaði út. Þá uppgötvaði ég að það rigndi nánast eldi og brennisteini.  Fór inn og klæddi mig aðeins betur, lagði svo í hann.
Dásamlegt að finna rigninguna á andlitinu, ég hugsaði um lagið „ walking in the rain „ ákvað að syngja ekki lagið af tillitsemi við vegfarendur.  Einn kostur þess að ganga að kvöldlagi í rigningu er að þú ert ekki ónáðaður af öðrum, þú ert einn.

Þú ert þá eftir allt eini syndarinn á svæðinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband