13.7.2011 | 09:01
Heilinn, mikilvægasta líffæri okkar.
Fallegt hús eða bíll, ellilífeyrir, eða hvaðeina sem við höfum þrælað til að eignast. Ekkert þessa skiptir máli ef andlegri og líkamlegri heilsu okkur hefur hrakar mikið, þegar við komumst á efri ár.
Mögulega er þetta ekki alveg rétt. Gamalt fólk getur keypt dýrum dómum ýmiskonar þjónustu. Peningana þína má vissulega nýta á þann hátt. Enn að hugsa sér þau vonbrigði að geta ekki notið ávaxta vinnu langrar ævi.
Hvað skilur þá á milli þess að njóta elliáranna, ferðast og leika golf, eða þá að rölta um ganga stofnunar og muna ekki hvernig maki þinn lítur út. Stundum gerist eitthvað sem þú ræður ekki við. Lífið getur verið hverfult. Glæpurinn stóri er hinsvegar að fljóta sofandi að feigðarósi.
Góðu fréttirnar eru hinsvegar þær að við eigum val, við getum náð tökum á lífi okkar og okkar kröftuga heila. Það er engin regla að hann þurfi að hrörna, höldum honum heldur í formi, eins og við þurfum að gera með okkar eina líkama.
Smá tékk:
- Gleymirðu mannanöfnum, tímapöntunum, símanúmerum,
- Týnirðu bíllyklunum og gleraugunum,
- Þú ferð inn í herbergi og manst ekki af hverju þú ert þar,
- Ertu í erfiðleikum með að einbeita þér,
- Áttu í erfiðleikum með einfalda útreikninga, sem áður voru ekkert mál,
- Ekki eins skarpur og áður.
Það ástæða til að muna að ekkert af þessu hér að ofan er eðlilegur hluti öldrunar. Það er undir þér sjálfum komið að stoppa þessa þróun og endurvekja þína fyrri snerpu. ( Grófleg endursögn úr grein í Newsmax Health Publisher )
Það sem hér er nefnt er áberandi í umræðunni. Talsvert er til af bókum og æfingum til að styrkja heilann. Margir sem lifa " aktívu " lífi eru auðvitað að gera þetta. Hafir þú áhuga á þessu efni eða telur þig þurfa að gera eitthvað, ræddu málið fyrst við þinn heimilislækni.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Við getum notað heilann miklu betur en við gerum sem dæmi að ég hætti að reykja með því að setja mynd inn sem segir: „að þegar ég hef þörf fyrir að reykja þá þýðir það að fá sér vatn (getur verið hvað sem er)". Myndin stýrir tilfinningunni að fá sér að reykja yfir að gera annað í staðinn.
Heilinn er undratæki sem við því ver og miður kunnum lítið á. Það er talið að um 400 milljarað boða fari um heilann á hverri sek.
Ómar Gíslason, 13.7.2011 kl. 12:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.