Einkavæðing ríkiseigna - dómur sögunnar.

Á árunum 1995- 2005 fór mikil alda einkavæðingar yfir hinn vestræna heim. Ríkiseignir voru seldar og þeim þannig komið í hendur einkaaðila.  Í reynd byggði þetta ekki sérstaklega á hægri eða vinstri stefnu. Má t.d. nefna að í Englandi byrjaði þetta jú með Margaret Thatcher en Verkamannaflokkurinn hélt þessu ferli áfram í valdatíð sinni.

Á Íslandi voru viðskiptabankar einkavæddir 2003. Innlendir kjölfestufjárfestar komu að þeim en ekki tókst að vekja áhuga erlendra banka á einkavæðingunni.  Nokkur önnur ríkisfyrirtæki en bankarnir voru einnig seld. Allt byggði þetta á þeirri skoðun að ríkisrekstur væru slæmt rekstrarform, einkarekstur og frelsi væri leiðin framá við.  Ríkisrekstur fæli í sér spillingu og hagsmunapot, hinn frjálsi markaður væri  betri og hagkvæmari lausn.

Þannig var þessi stefna einkavæðingar, ríkjandi stefna þessa tíma, og ekki einhverjir sérstakir duttlungar stjórnmálamanna á Íslandi.

Hvar stöndum við þá í þessum stóru spurningum um ríkið og einkareksturinn?  Ekki mögulega spurning dagsins, en gæti sannarlega verið spurning morgundagsins, eins og þróun atvinnulífs á Íslandi er að þróast.  Hvað höfum við lært í framkvæmd slíkrar einkavæðingar ?

Einkavæðing 2003 átti að mótast af faglegheitum og gegnsæi, en endaði í ákvörðun 1-2ja manna, segir sagan. Í fréttum nýlega var sagt frá því að tryggingafélagið Sjóvá - Almennar hefði verið selt. Hvað tóku margir menn þátt í þeirri ákvörðun.

Ég spurði vitran mann að því hver var árangurinn af þessu öllu. Hans svar var, ekkert.   Ráðamenn hvers tíma gera það sem þeir vilja.  Allt tal um opið eitthvað, gegnsætt eitthvað, er fyrir hátíðarræður og til að friða lýðinn.  Ráðamenn virðast  gera það sem þeim sýnist og komast upp með það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Halldórsson

Trúarkreddur í pólítík eru bæði til vinstri og hægri.Brunabótafélag Íslands t.d var farsælt félag en var ríkisrekið.

Hörður Halldórsson, 11.7.2011 kl. 22:53

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Það væri full ástæða til þess að fara vel ofan í saumana á einkavæðingunum. Þegar við skoðum einkavæðingum bankanna á sínum tíma er hægt að gagnrýna það ferli. Sé hins vegar það borið saman við einkavæðingu bankana nú, er sú gamla hátíð miðað við þá nýju.

Sigurður Þorsteinsson, 11.7.2011 kl. 23:36

3 Smámynd: Geir Agnar Guðsteinsson

Ábyrgð Thatcher er mikil og yfirleitt ekki af hinu góða. Heimurinn virtist trúa því að einkavæðing væri lausn allra mála. Við erum heldur betur að súpa seiðið af því nú, en því miður heldur þetta einkapotaferli áfram, bara með öðrum formerkjum. Hvar endar þetta eiginlega?

Geir Agnar Guðsteinsson, 12.7.2011 kl. 00:26

4 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Geir, við höfum séð ríkisvæðingu í framkvæmd og hún er ekki að skila miklum árangri.  Hérlendis er hún kennd við Svavar Gestsson og Steingrím Sigfússon. Öfgastefnur eru ávallt til skaða. Vel framkvæmd einkavæðing eða þjónustuvæðing þegar hún á við getur skilað þjóðfélaginu miklu.

Sigurður Þorsteinsson, 12.7.2011 kl. 08:59

5 Smámynd: Geir Agnar Guðsteinsson

Ég er sammála þér, Sigurður, að Svavar Gestsson er skaðvaldur. Steingrímur sendi hann til Kaupmannahafnar ásamt Indriða til að semja um ICESAVE en það er dýrasta sendilferð sem íslenska þjóðin hefur þurft að horfast í augu við vegna þess að þar fóru tveir óhæfir menn til að leysa þann vanda. Við erum enn að súpa seyðið af því. Vel framkvæmd þjónustuvæðing er nokkuð sem e ansi teygjanlegt og hægt að túlka á margan hátt.

Geir Agnar Guðsteinsson, 13.7.2011 kl. 00:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband