Afstaða íslendinga og annarra til Kínverja.

Kínverjar eru rísandi veldi í heiminum í dag.  Einhver gæti sagt að þeir væru aðeins að endurheimta sína fyrri stöðu, sem stórveldi.

Nýjar fréttir um að Wen Jiabaos forsætisráðherra sé væntanlegur hingað í opinbera heimsókn. Sú frétt er ekkert minna en stórfrétt og heiður fyrir okkur.  Hann hefur að undanförnu verið í Þýskalandi með mikið föruneyti. Þjóðverjar hafa tekið honum með kostum og kinjum, sjá gýfurleg tækifæri fyrir sig í Kína.

Heimsókn hans hingað dettur auðvitað ekki af himnum ofan.  Hún er afrakstur mikillar diplomatiskrar vinnu og áralangra vinsamlegra samskipta þjóðanna.  Það er öllum ljóst sem þekkja til samskipta okkar og Kínverja, að Kínverjar vilja rækta og treysta samskipti við okkur.  Við eigum að fagna þessu og þetta á að vera frá okkar hliða gagnkvæmt, Kínverjar leggja mikið upp úr vináttu og þegar sú vinátta er fengin eru þeir sannir vinir.  Þeir kunna einnig þá list að gera skarpan greinarmun í vini eða viðhlæjanda.

Traustur vinur tekur mann eins og maður er með kostum og göllum. Vinur er sá er til vamms segir, segir máltækið.  Víst er það en þú ert líka ekki alltaf að gangrýna vini þína.

Það er hægt að vera ósamál Kínverjum um margt.  T.d. um mannréttindi, þeir eru ekki lýðræðisríki, þeir hafa stjórnskipulag alræðisstjórnar, og þeir hafa sína afstöðu til Taiwan.  Séum við í stöðu til að ræða þetta við þá á að gera það.  Þetta er hinsvegar þeirra afstaða og innanríkismál við það situr.  Verum einnig minnug þess að mögulega er eitthvað í okkar ranni sem má gangrýna, þegar það er gert erum við þá með bros á vör, ég held ekki.

Efnahagsmáttur Kínverja er gífurlegur. Peningakistur þeirra tútna út, reyndar ekki í fyrsta sinn í sögunni.  Þeir eru sakaðir um að fara um lönd og kaupa allt og alla. Þetta er aðeins að hluta til rétt. Þeir eiga mikla peninga á tímum erfiðleika og fjárskorts á Vesturlöndum og víðar.  Einhver gæti sagt að Vesturlönd séu komin á enda eyðslu og óráðsíu og nú sé komið að skuldadögum.  Þá standa Kínverjar í dyragættinni með fulla vasa fjár. Þeir hafa reyndar fjármagnað USA um langa tíð, staðreynd sem Ameríkanar vilja sem minnst um tala. Fyrir fjárfesti með fullt af peningum eru í dag góðir tímar til að kaupa.  Góð spurning er hvers vegna eru allir svona uppnæmir yfir kaupum Kínverja. Ríkisbubbar allra landa, græða í dag á tá og fingri.  Gleymum ekki í þessu sambandi eðli peninganna, sá sem á peninga í dag, hefur einhvern tíman sparað, eða sýnt aðhaldssemi, það hafa Kínverjar einmitt gert.

Kínverjar hafa á Íslandi öflugt og virkt sendiráð. Það höfum við einnig í Kína. Við eigum að rækta samband okkar við Kína. Af þessari grónu og öflugu menningarþjóð er margt að læra. Það á einnig við í viðskiptum. Hvað þar á að taka fram fyrir annað er ekki auðvelt, en ég nefni, þolinmæði.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Snævar Jónsson

Það er lóðið, um margt sem hér er ritað.

Þess vegna er ég orðlaus af undrun eins og margir aðrir eftir að það fréttist að forsætisráðherra Íslands gat ómögulega séð sér fært að hitta þennan volduga og virðulega þjóðhöfðingja þessa stóra og styrka ríkis þegar hann fann tíma í sínu heimsfundaplani núna í júlí 2011. Ég hef ekki séð né heyrt viðhlýtandi skýringu frá ráðherranum sem réttlætir það, enda virðast margir á Vesturlöndum gapa af undrun á þeim ótrúlegu viðbrögðum. Nánast ekkert fær afsakað þau nema persónuleg veikindi eða annað því um líkt hjá ráðherranum.
Það verður fróðlegt að heyra hverju ráðherrann ber við þegar hún lætur svo lítið að tjá sig um það við almenning.

Kristinn Snævar Jónsson, 6.7.2011 kl. 21:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband