5.7.2011 | 11:09
Umsókn um ESB aðild.
Þegar evrópskar sendinefndir koma til Íslands og er kynnt staða ESB málsins meðal þjóðarinnar, eru þessi aðilar furðu lostnir, töldu sig vita af andstöðu en að hún væri þessi, kemur þeim á óvart.
Nú er það alveg klárt að Alþingi samþykkti könnun á þeim kostum sem okkur íslendingum stæði til boða við ESB aðild. Allt er gott um það að segja sjálfsagt er meirihluti landsmanna samþykkur því.
Þróun umræðunnar og vaxandi andstaða hlýtur hinsvegar að vera aðildarsinnum mikið áhyggjuefni. Hvað er þetta fólk eiginlega að hugsa. Vonar það að samningsdrögin við ESB verði slíkt gylliboð að þjóðin snúist á puntinum. Er eitthvað það í spilunum sem bendir til þess?
Þvert á móti hafa þeir sem eru á móti aðild náð vopnum sínum. Ýmislegt í umhverfinu hefur einnig lagst á sveif þeirra sem eru á móti. Má þar nefna Icesave, vandi ýmissa evruríkja, og almenn reiði í garð stjórnvalda.
Á hinu pólitíska sviði hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið að þjappa sér saman um nei, og jásinnar innan flokksins eru hjáróma rödd. Svipuð staða er í öðrum flokkum nema mögulega Samfylkingunni.
Já-sinnar hljóta að treysta á að samningsdrög snúi taflinu. Þá gufi upp allt tal um afarkosti sjávarútvegs og landbúnaðar við höfum einfaldlega fengið boð we cant refuse Við smáþjóðin komumst loks í öruggt skjól Evrópuþjóðanna, fáum nýja mynt evruna, öll okkar vandamál eru leyst með einu pennastriki, hallelúja.
Mikil er trú þín kona sagði maðurinn. Hafi menn getað eða viljað trúa þessari lausn fyrir 2 árum, hafa margir horfið frá þeirri trú, eða eru í besta falli mjög vantrúaðir.
Ég held að gamli góði EFTA samningurinn verði okkar haldreipi enn um komandi ár. Í honum höfum við reyndar það besta úr " báðum heimum ". Við verðum hinsvegar reynslunni ríkari, því umræðan um ESB mál hefur lyft upp á borð mörgum málum, sem þurfti að ræða og skýra. Málum sem snúa bratt að okkur Íslendingum sjálfum.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.