1.7.2011 | 12:23
Hvað er mikilvægt í lífinu.
Rannsóknir hafa sýnt að tvennt sker sig úr:
- Ósk um góða heilsu,
- Hamingjusamt fjölskyldulíf,
- Samband við aðrar manneskjur.
Sé rýnt í erlendar kannanir er þetta svar nokkuð alþjóðlegt og gildir þá einu hvort um er að ræða þróaðar eða vanþróaðar þjóðir. Þetta svar er þeim mun athyglisverðara, þar sem óskir um auðlegð, eilífa æsku og endalausa velmegun er hér ekki í fyrirrúmi. Glansheimur þeirra frægu og ríku er þá eitthvað til að fletta og lesa um í blöðum, í ætt við tölvuleik, frekar enn lífið sjálft.
Við sem eldri eru vitum að lífið sýnir á sér ýmsar hliðar. Hvað er allra mikilvægast er afstætt en nefnum samt:
- Að hafa nægilegt sjálfstraust,
- Að vera ábyrgur fyrir lífi sínu,
- Að hugsa í lausnum, en ekki vandamálum,
- Að skilja líf sitt og tilveru. Kemur með auknum þroska.
Hvaða tilfinning er hamingja ? Fræðimenn, nefna atriði, sem þurfi að vera til staðar, alger einbeiting, skýrt takmark eða markmið sem stefnt er að , að árangur sé sýnilegur. Tökum dæmi:
- Íþróttakeppni, sem ég hef unnið, besti tími sem ég hef nokkurn tíman náð. ( ekki að hafa unnið aðra keppendur það er egóið )
- Kona sem hefur fætt heilbrigt og fallegt barn,
- Brúðkaupið okkar.
Æfing dagsins, hvenær var ég síðast hamingjusamur. Ef það er of langt síðan, hvað ætlar þú þá að gera í því ?
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.