Hvers vegna fara konur og karlar í pólitík.

Í almennri umræðu fá fáir hópar verri útreið en stjórnmálamenn. Traust á þessari stétt er lítið og einn af nýju þingmönnum okkar lýsti því nýlega að hann væri ekki matvinnungur.

Þessi mynd verður því óskiljanlegri, sem það kostar stórfé að komast í pólitík og sumir þingmenn hafa kostað til milljónatugum til að komast í þetta skrítna starf. Reyndar þarf að segja það um leið að þessir milljónatugir voru ekki eigið fé þingmannsins.

Þegar þingmönnum hefur verið úthúðað með flestum skammaryrðum tungunnar eru þeir spurðir hvers vegna þeir sækist þá eftir þessu starfi. Svarið er einfalt, Alþingi er skemmtilegur vinnustaður og félagsskapurinn góður.  Reyndar verð ég að segja að ég tek út fyrir þessa dónalegu umræðu um þingmenn, þekki margt gott fólk í þessum hópi.

Rakst á áhugaverða pælingu um mismuninn á því hvers vegna konur og karlar bjóða sig fram til embætta:

„ Konur bjóða sig fram vegna þess að það eru einhver sérstök málefni, sem þær hafa áhuga á, eða breytingar sem þær vilja koma í framkvæmd. Karlar bjóða sig fram af því að þeir sjá þetta sem framabraut „

„ Kannanir sýna að það er erfiðara að fá konur til opinberra starfa, jafnvel þó þær hafi sömu menntun og karlarnir.  Karlarnir horfa á aðrar karla sem hafa verið kosnir og segja, ég er jafngóður og þessi. Konurnar gera hinsvegar meiri kröfur til sín en þeirra kvenna er sitja á þessum stólum „segir Debbie Walsh, director of the Center for American Women and Politics at Rutgers University.

Auðvitað sannast  það hér eins og allir giftir menn vita, að konur eru okkur körlum fremri í flestum hlutum.

Ég vona sannarlega að umræðan um þingmenn breytist.  Reyndar vakti það litla athygli að í lok síðastliðins þings voru gerðar róttækar breytingar á starfsemi Alþingis, sem má búast við að skili góðu fyrir störf Alþingis.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Já þetta er góð spurning:) Ég fór í bæjarpólitík og var viðloðandi hana í næstum tvo áratugi..(var 12 ár í bæjarstjórn) Ég sat í eldhúsinu og tautaði eins og gjarnt er..en svo sá ég hvað það var tilgangslaust..Ákvað að láta heyrast betur það sem ég hafði fram að færa:):) Ein er sú kona sem hafði mikil áhrif á mig..Það var Vigdís forseti.

Bestu kveðjur úr blíðunni í Stafneshverfinu.

Silla.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 8.7.2011 kl. 09:04

2 Smámynd: Jón Atli Kristjánsson

Það gott að eiga kjarnakonu eins og þig, sem finnur sign knúna til að gera eitthvað, og gerir svo eitthvað í málinu. Átti heima í Svíþjóð þegar Vigdís varð forseti. Kaus hana að sjálfsögðu. Man vel hvað þetta var merkilegur atburður og einhver freskur andblær sem fylgdi kjöri þessarar konu. Hún var okkur til mikils sóma hvar sem hún fór.  Rifjaði það upp í einhverri heimsókn til Svíþjóðar, að hún hafði tekið bílpróf í Dölunum.

Jón Atli Kristjánsson, 10.7.2011 kl. 20:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband