28.6.2011 | 10:55
Nýjar uppgötvanir.
Það er alltaf verið að bæta og breyta fyrirliggjandi vörur - vöruþróun. Japanir voru á árum áður þekktir fyrir þetta, þeir tóku vörur annarra, breyttu þeim eitthvað og seldu sem sínar.
Hugtakið disruptive technology -or innovation er um breytingar á vörum eða þjónustu sem kemur markaðnum gersamlega á óvart. Getur t.d. verið lægra verð, eða að varan höfðar til alveg nýrra viðskiptavina.
Það áhugaverða er hvernig þetta gerist, hvað kallar fram þessar breytingar. Henry Ford, sagði þegar hann var spurður um nýja bílinn sinn; ef ég hefði spurt viðskiptavini mína hvað þeir vildu, hefðu þeir svarað a faster horse
Gömul mynd af hugmyndum að bíl eru hestar sem hlaupa á einskonar færibandi sem drífur bílinn áfram. Öll hugsunin bundin við hesta.
Viðskiptavinurinn getur hjálpað þér að þróa vöruna, hún batnar smá saman, en þetta er alltaf sama varan. Það er aðeins þegar lausnin er hugsuð upp á nýtt, eins og Ford gerði, að til verður bíll T módel, sem var tiltölulega ódýr fjöldaframleiddur bíll fyrir fjöldann í stað þarfasta þjónsins- hestsins.
Við eigum mögulega nú þegar einstaklinga, sem hugsa út fyrir rammann, sjá lausnir sem enginn annar sér. Er hægt að veiða fisk með miklu ódýrari og betri hætti er gert er á Íslandi í dag. Er lausn á orkuvanda ( mengunarvanda ) heimsins í kollinum á einhverjum, sem tilkynnir uppgötvun sína á morgun.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 42828
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.