Olķuaušurinn ķ noršri.

Olķuišnašurinn er skrķtin skepna. Žessi heimur mótast af fįum stórum fyrirtękjum, sem ķ reynd rįša öllu, en utanį hanga svo önnur minni félög, sem taka žį bita sem hinir vilja ekki.

Stóru félögin eru svo rķk aš einhver gęti sagt aš žaš sé óhuggulegt. Allt ķ olķuheiminum kostar lķka slķkar summur, aš žaš er aldeilis betra aš eiga aura, annars ertu ekki meš.

Žó stóru olķufélögin séu flest skrįš į markaš og verši žannig aš gefa śt mikiš af upplżsingum eru žeirra starfsašferšir vel geymd leyndarmįl.  Ekkert óešlilegt viš žaš ķ žessum heimi.

Stóra spurningin fyrir okkur Ķslendinga og ašra ķ okkar heimshluta er hvaš eru žessir ašilar aš hugsa og hvernig snżr žaš aš okkur?   Stöndum viš mögulega į žröskuldi olķuęvintżris, žar sem svartagulliš mun flęša og öll okkar vandamįl hverfa eins og dögg fyrir sólu?

Heišarlegt svar er ekki aušvelt aš fį. Viš vitum hinsvegar hvar svariš liggur, žaš liggur hjį hinum stóru.  Til mikillar einföldunar žį hafa žeir komiš sér upp lista, yfir nż svęši.  Į žessum lista er aš finna öll mögulegt olķusvęši heimsins, lķka noršriš. Žessum svęšum er rašaš ķ röš eftir įętlušum framleišslukostnaši og žekktum tölum um magn.  Hugsum okkur aš efst sé žau meš lęgstan framleišslukostnaš. Hvar skyldi Drekasvęšiš vera į žessum lista, eitt er vķst žaš er ekki nśmer eitt.

Stöšugar breytingar eru į žessum lista og olķuverš į hverjum tķma hefur įhrif į röšunina.  Olķufélag hugsar ķ stórum drįttum žannig:

  • Ég veit hvaš ég get framleitt mikiš į dag,
  • Ég veit hvaš ég į mikiš af vinnanlegum svęšum, birgšum, meš aršsömum hętti m.v. olķuverš, og framleišslukostnaš,
  • Ég verš aš hafa ķ gangi öflun nżrra svęša, sem aš lįgmarki višhalda birgšunum,
  • Žaš er gott fyrir okkur aš ķ umręšunni sé sķfellt rętt um skort, hękkar veršiš.

Olķufélögin eru öll meš öflugar deildir sem sjį um birgširnar, listann okkar góša, kortlagningu nżrra svęša.

Tökum nokkur dęmi um hvernig žetta virkar:

  • Žaš hefur veriš žekkt ķ yfir 10 įr aš žaš er olķa viš Falklandseyjar. Žarna vita menn ekki um framleišslukostnaš og magn. Magn skiptir oršiš miklu mįli, vķša er olķa en hśn er ekki ķ vinnanlegu magni. Vinnanlegt magn, žżšir aš kostnašurinn viš vinnsluna, fęst ekki til baka m.v. viš magniš. Falklandseyjar hafa žvķ veriš nešarlega į listanum, ašrir kostir ódżrari og aršbęrari,
  • Žaš er vitaš ķ žessum bransa aš žaš er venjulega ódżrara aš vinna olķu į landi en ķ sjó. Vinnsla ķ sjó er žó ekki vandamįl į litlu dżpi. Kostnašurinn margfaldar ef dżpiš er meira og vinnslan er į erfišum hafsvęšum. Vegna žessa er ķ dag mikill įhugi fyrir Brasilķu, žar er unniš į landi, og svęši eru aš gefa billjónir tunna,
  • Žaš t.d. vitaš af mörgum svęšum ķ Noršursjóš žar sem er olķa. Magniš réttlętir hinsvegar ekki vinnslu. Žau svęši fęrst nešar į listanum, en gętu mögulega komiš inn aftur meš enn hękkandi verši,

Noršmenn og Rśssar eru stóru kallarnir ķ olķunni ķ okkar heimshluta.  Žeir eru sannarlega ķ hópi žeirra stóru.  Žegar rętt er um olķu mį ekki gleyma gasinu, sem er veršmęt afurš og er hluti žessa išnašar.

Žaš er įlyktun mķn aš starfsemi fyrrgreindra žjóša į noršurslóšum sé ekki vinnsla heldur kortlagning ( mapping ) til sķšari tķma.  Sama į viš um afstöšu stóru olķufélaganna.  Žaš er veriš aš bęta viš listann. Tilraunaholur eru boršar og žeim sķšan lokaš žar til sķšar.  Žaš mį einnig segja aš tęknin til aš vinna į žessum ķssvęšum hafi ekki veriš fundin upp.  Aš žessu svęši verši mögulega ķslaus eftir einhverja įratugi, kann aš leysa mįlin af sjįlfu sér.  Önnur svęši į listanum hafa žvķ forgang.  Žessi svęši vęri hagt aš taka aftur til skošunar ef olķa vęri $ 500 į tunnuna. Annaš sem menn vita einnig er aš kostnašur viš vinnslu į žessum svęšum er mikill, jafnvel žeir stóru verša žar aš vinna saman.

Ķ upphafi žessara hugleišinga varpaši ég žvķ fram hvar Ķsland - Drekasvęšiš er į lista olķufélaganna.  Tilfinning mķn er aš žaš sé aftarlega.  Ein tilraunahola į žessu svęši kostar 50 milljónir $  kostnašur sem er 100%  įhętta.  Jafnvel žó žarna sé olķa er spurning um vinnanlegt magn. Vilji Ķsland vekja įhuga alvöru ašila į žessu svęši, er viš mörg įlitlegri svęši  aš keppa.  Ķsland žarf aš skilja stöšu sķna, bišlar standa ekki ķ röšum, okkar svęši žarf aš vera įlitlegra en önnur, eša kjörin hagstęšari.   Samvinna viš Noreg er ein kostur, en hętt er viš aš norskir hagsmunir komi alltaf fyrst, ekkert er gefiš ķ žessum heimi.

Allt tal um noršurslóšir og olķu eru mįl nęstu 10-20 įra.  Framundan eru dżrar rannsóknir, rannsóknir sem viš sjįlf höfum ekki efni į aš kosta.  Ef viš erum heppin žį gętum viš mögulega fundiš heppilegan samstarfsašila, „ Ķslandsvin" .

 


« Sķšasta fęrsla | Nęsta fęrsla »

Bęta viš athugasemd

Ekki er lengur hęgt aš skrifa athugasemdir viš fęrsluna, žar sem tķmamörk į athugasemdir eru lišin.

Um bloggiš

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Jśnķ 2025
S M Ž M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nżjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Ķ dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frį upphafi: 0

Annaš

  • Innlit ķ dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir ķ dag: 0
  • IP-tölur ķ dag: 0

Uppfęrt į 3 mķn. fresti.
Skżringar

Innskrįning

Ath. Vinsamlegast kveikiš į Javascript til aš hefja innskrįningu.

Hafšu samband