15.6.2011 | 10:00
Það er gott að hugsa í ræktinni.
Er það ekki staðreynd að í ræktinni og púlinu, eykst blóðflæðið og reyndar öll líkamsstarfsemi og þú veður almennt gáfaðri. Þetta er nýjasta innlegg mitt til íþróttafræðinnar.
Það er einstaklega gaman að vera samvistum við allt þetta unga og fallega fólk sem sækir Sporthúsið, þar sem ég æfi og hef gert í mörg ár. Konurnar eru fleiri og eru einstaklega duglega að mæta og taka vel á því eins og sagt er.
Fjölbreytni allskyns námskeiða í Sporthúsinu er þannig að engum á að leiðast á þeim stað. Nú fer einnig í hönd sá tími, sem hægt er að vera úti, tennisvellir eru til staðar og ýmis útiaðstaða. Allir bíða betra veðurs og að loksins koma einhver varanleg hlýindi til okkar.
Í sambandi við heilsu og heilsurækt langar mig að minnast á tvenn, sem ég hef rekist á:
- Próf sem hægt er að taka, er segir til um það sem kallað er lífaldur. Lífaldur er svo hægt að bera saman við raunaldur, hvað þú er gamall. Í þessu prófi ertu spurður ýmissa spurninga um ástand þitt og heilsu. Ef lífaldur þinn er hærri en raunaldur þarftu að gera eitthvað í málinu. Ef hann er lægri ertu í góðum málum,
- Próf um ástandið á heilanum í þér. Prófið segir hvað þú þarft að laga. Ég t.d. drekk of mikið kaffi. Þeir sem bjóða upp á þetta próf, geta einnig selt þér fullt af æfingum til að þjálfa heilann.
Framboð allskonar lausna í heilsu- og hollustugeiranum er sífellt að aukast. Framboð af fæðubótaefnum, er eitthvað til að klóra sér í skallanum yfir. Það er eins gott að hafa góða ráðgjafa til að leiðbeina sér í gegnum þann frumskóg.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.