Staða kirkjunnar.

Kirkjan var stórveldi á Íslandi og áhrif hennar voru mikil.  Hún var hluti af valdastjórninni og hún var auðug af fé,  átti stóreignir.  Yfirstéttin í landinu og kirkjan, áttu sannarlega samleið í mörgum málum.

Fyrir þá sem þekkja þessa stöðu finnst staða kirkjunnar í dag vera döpur og vanmáttug. Ekki endilega vegna þess að menn vilji fá fyrri stöðu til baka, heldur er spurningin hvað gerðist?

Kirkjan var stórveldi á Íslandi á tímum mikilla erfiðleika. Kirkjan hafði lausnir á örbirgðinni, hún hafði eitthvað að „ selja „  Söluvarana var eilíft líf, betri og hamingjusamari staður, betri staður en baslið í þessu lífi.  Það var hægt að leggja mikið í sölurnar fyrir það.

Í dag er kirkjan í gífurlegri samkeppni um tíma og áhuga fólks.  Það á einnig við um grunninn, trúna, þar á fólk ýmsa kosti.  Jafnvel það að kirkjan sé góð, hefur fengið ljóta skelli og okkur hefur verið sýnd ný hlið á góðu kirkjunni okkar.

Kirkjan og  þeir sem þar starfa hafa lent í nýrri stöðu. Stöðu sem þeir verða að skilja og vinna með:

  • Kirkjan sinnir stóru hlutverki í lífi fólksins á stórum dögum í lífi þess. Fjölmenn jarðarför sýnir betur enn margt hlutverk kirkjunnar. Það er á þessum stundum sem kirkjan getur skorað,
  • Kirkjan á að vera góð stofnun. Hjálparstarf kirkjunnar er stór vettvangur innan hennar. Hún er það líka í augum flestra, enn mennirnir eru það ekki allir. Inn í kirkjuna hefur verið of greið leið fyrir „ kalkvista „ sem þangað mega ekki komast.

Kirkjan á að byggja á styrk sínum og taka á veikleikum sínum. Þrátt fyrir allt hefur hún sterka stöðu, mögulega ekki þá stöðu sem hún vildi hafa, en vel viðunandi.  Kirkjan og trúin er hvað sem öllu líður ákveðin hornsteinn í lífi okkar. Við leitum mögulega ekki oft til hennar, en þegar á bjátar, komum við aftur " heim ".

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnar

Frábært að sjá jarðafarir sem markaðstækifæri..

Arnar, 9.6.2011 kl. 11:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband