Að læra af mistökum sínum - mannkostur.

Rannsóknarskýrsla Alþingis, sagði okkur hvað gerðist í kreppunni. Merkilegt plagg og marglofað.

Í framhaldi af þessari skýrslu hef ég mikið verið að velta því fyrir mér hver var lærdómur þessara tíma þ.e 2003-2008. Þessa spurningu má nálgast með ýmsum hætti.  Í Fréttatímanum 3-5 júní 2011, undir fyrirsögninni  lærðist ekkert á hruninu:

  • „ Virkjun og álver fyrir um 250 milljarða króna, sem féllu til á fimm árum og nám þá um 20% af þjóðarframleiðslu,
  • Útgjöld ríkisins jukust um meira en 50% að raunverði, þó leiðrétt sé fyrir kostnaði tengdum hruninu 2008,
  • Fljótandi króna sem falsaði kaupmátt og skekkti alla verðlagningu,
  • Samrekstur viðskipta- og fjárfestingabanka sem fól í sér gríðarlega áhættusækni.

Á nú að endurtaka leikinn. Forsætisráðherra hefur kynnt stórframkvæmdir upp á 440 milljarða er gætu fallið til næstu fimm árin. Hafið er ferli afnáms haft og undirbúningur að fleytingu krónu.  Búið er að endurreisa bankana í óbreyttri mynd. „

Þessir tímar 2003-2008 voru sannarlega lexía fyrir íslenska þjóð. Hún sá á þessum tímum, á sér hlið, sem við viljum lítið tala um.  Við sáum græðgina í augum fjölda fólks, sérhyggju og eiginhagsmuni. Við sáum grímulausa auðhyggju, þar sem fjöldi fólks vildi nýta stöðu sína hvað sem það kostaði.  Samhygð og staða lítilmagnans var ekki til í þessum heimi.  Það var enginn morgundagur á þessum árum, veislan skildi standa endalaust.  Eftir á, er auðvelt að segja, þarna voru 30 útrásarvíkingar að verki, sannleikurinn er,  hálf þjóðin tók þátt í gleðinni.

Lærdómurinn var nefnilega ekki aðeins efahagslegur.  Það kom upp á okkur hlið, sem við viljum lítið ræða eða skilja og að því best verður séð helst gleyma.  Ég tek því ofan fyrir þeim sem vilja læra af þessari sögu og vísa m.a. til nýrrar bókar Björns Bjarnsonar.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Góð færsla hjá þér..Langar að lesa bók BB..

Kveðja úr Heiðarbæ.

Silla.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 7.6.2011 kl. 09:42

2 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

Ég er sammála flestu sem þú skrifar.

Hins vegar hef ég í samtölum mínum við fólk, meðal annars þingmenn, ekki heyrt annað en að gjaldeyrishöftin séu hluti af græðgisvæðingu fyrri ára.

Höftin afnema sjálfsögð réttindi almennings, þau auka misskiptingu auðs og hygla auðmönnum.  Höftin eru því hluti af gamla tímanum.

Þegar ég bendi á þessa augljósu galla í útfærslu haftanna þá er enginn sem vill breyta þeim enda halda flestir að það sé í lagi að afnema sjálfsögð réttindi svo þeir sjálfir geti notið efnahagslegs ávinnings, þó svo að ávinningurinn vari ekki nema í skamman tíma.

Lúðvík Júlíusson, 7.6.2011 kl. 09:52

3 Smámynd: Jón Atli Kristjánsson

Gaman að heyra í þér Silla.  Björn stendur fyrir sínu. Á heimasíðu sinni hefur hann verið að skrifa stjórnmálasögu Íslands.  Það sem þar er að finna eru verðmætar heimildir, fyrir seinni tíma rýnendur.

Takk fyrir þetta Júlíus.  Það sem þú segir um höftin er allt rétt.  Höft eru í reynd uppgjöf í hagstjórn. Þegar þau hafa einu sinni verið sett á, og eiga alltaf að vera til skamms tíma, er ekki svo auðvelt að taka þau af.  Skaðsemi haft er þess eðlis að þau er erfitt að mæla, skaðsemin er hinsvegar mikil. Við skulum vona að áætlun SÍ gangi eftir og við séum á einhverri leið út úr þessu. Þegar hinsvegar er nefnt að það taki 3-5 ár fer hrollur um mann.

Jón Atli Kristjánsson, 7.6.2011 kl. 15:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband