31.5.2011 | 07:54
Besti flokkurinn, eins árs afmæli.
Í viðtali við Ævar og Jón Orm í landið rís 29.5 s.l. fer Jón Gnarr yfir sviðið á þessu eins árs afmæli flokksins. Hér endursegi ég þetta viðtal með mínum orðum:
- BF var afsprengi kreppunnar, allir voru búnir að gefast upp á hinum flokkunum. Við í BF deilum því að ýmislegt sé að laga. Má þar nefna samræður, og meðvitund gagnvart öðru fólki, hvernig við tökumst á við vandamál, samskipti og viðhorf til fjölmiðla. Öll erum við í BF mjög friðarsinnuð. Friðsamari samskipti milli allra gæti verið okkar boðorð. Það hefur í okkar samfélagi, borið á andlegu og líkamlegu ofbeldi. BF er andóf við reiðinni í samfélaginu, erum ekki að leita að sökudólgum, að kenna einhverjum um allt sem aflaga fór, the blame game,". Með því að vinna saman og í núinu, kemur framtíðarsýn, og ný stefna, ekki með einhverjum loforðalista,
- Við í BF þykjum innileg, við föðmumst mikið. Við í þessum hópi þekktumst ekki mikið áður enn við byrjuðum að vinna saman. Það hefur skapast einlæg vinátta í þessum hóp, og samstaða um að við megum ekki gefast upp fyrir verkefninu. Mottó okkar er, við eigum að vinna saman,
- Alltof lítinn tíma fyrir framtíðar pælingar. Við þurfum að setjast niður og skoða, verkfærið BF, og hver er okkar pólitík, það er ekki ljóst. Við getum þó sagt að við erum höll undir, líberal - sósíalisma. Eigum ýmislegt sammerkt með grænum flokkum Evrópu. Frelsi einstaklingsins er okkur mikilvægt, sem við sækjum til hægri. BF má ekki enda sem gáfumannklúbbur, má ekki slitna úr sambandi við fólkið.
- Sveitarstjórnarmál, er vanmetið svið í pólitíkinni. Landsmál eru alvöru stjórnmál segja menn, sveitarstjórnamál eru stökkpallur þangað. Í sveitarstjórnum er þetta, 90% almenn skynsemi. Þetta snýst um rekstur sveitarfélagsins frá degi til dags. Ég vona að BF bjóði næst fram í fleiri sveitarfélögum. BF veðrur að koma með skýra stefnu fyrir borgina. t.d í umhverfismálum, loftslagsmál, hann verður að hafa umhverfisstefnu. BF þarf að hlusta á fólkið varðandi þessa málaflokka og ræða lausnir, það vantar samræður.
Það er ekki auðvelt að átta sig á þessu öllu, eða því hvað BF stendur fyrir. Mér finnst Jón Gnarr tala eins og Hanna Birna í mörgum málum. Það er ekki nokkur vafi á því að BF hefur komið inn í íslenska pólitík með eitthvað nýtt að mati stórs hóps. Erlendir aðilar fylgjast með flokknum í þeirri vissu að hann sé að gera nýja hluti. Þó reiði í garð fjórflokksins hafi verið byrjunin, þá er sú reiði enn fyrir hendi og stór hópur að leita að einhverju nýju. Það er í reynd sorglegt að heyra þá skoðun að allt sé betra en núverandi stjórnmálaflokkar.
Má summera upp BF þannig:
- Friðarsinnar,
- Samræðupólitík, þar sem markmiðið er einfaldari umræða, látum sérfræðingana um annað,
- Meiri vinátta, meiri samkennd, verum mannleg en ekki ofurmenni sem allt vitum,
- Flokkur sem vill brjótast út úr hefðinni, umræðuhefðinni, auðhyggjunni.
Ég mun fylgjast með BF af áhuga og hans lausnum. Stjórnmál snúast um betra mannlíf og hamingju, mögulega hefur BF bent á leiðir á þeirri vegferð.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Afar skemmtileg og góð pæling. Ég er sammála um að smá saman hafa sveitarstjórnarmálin varið á leið eitthvert sem enginn vildi hafa þau. Einhver togsreyta og leiðindi, í stað þess að vera á jörðinni. Einhvers konar leikhús sem enginn vill taka þátt í. Hanna Birna reyndi að koma með nýjar áherslur og þess vegna kom árangur Besta flokksins enn meira á óvart.
Sigurður Þorsteinsson, 1.6.2011 kl. 06:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.