30.5.2011 | 07:33
Orkuauðlindir landsins og nýting þeirra.
Það er óskandi að góð sátt og friður skapist um þessa vinnu. Tillögurnar festist í sessi og lendi ekki í hakksmaskínu hagsmunaárekstra. Hér er hinsvegar á ferðinni mál þar sem nógu breiður hópur fólks verður að ná saman til að verja fyrirliggjandi tillögur. Mögulega þarf að kjósa um þær. Því eins og tvisvar tveir eru fjórir, mun á einhverjum tíma verða sótt að þessum hugmyndum og reynt að breyta þeim. Þessi vinna hefur verið unnin blessunarlega utan kastljóss fjölmiðlanna af góðu og traustu fólki.
Landsvirkjun er leiðandi fyrirtæki í orkuvinnslu á Íslandi. Þar hafa nú komið til valda nýir menn og konur. Í reynd eru þar að vera kynslóðaskipti. Það sem heyrst hefur frá þessari nýju forystu er mjög áhugavert. Hörður forstjórinn hefur m.a. upplýst:
- Það hægt að virkja, með góðri sátt, helmingi meira en við höfum þegar gert. Það þýðir 20 tervött og jafngildir orku fyrir 3 stór álver, ef öll orkan færi þangað,
- Landsvirkjun vill fara varlega í nýtinguna, það er erfitt að stíga til baka. Spurður hvaða iðnað viljið þið, er svar hans. Þetta er ekki eingöngu val okkar, við getum þó séð meiri fjölbreytni. Við vinnum á markaði, við verðum m.a. að leggja áherslu á hæsta verð,
- Tíminn vinnur ekki með okkur. Það hefur snúist við. Kostnaður okkar er 30$, í Evrópu 90$, hann er 150-200 $ í vindi og öldum. Við verðum að vera ódýrari en Evrópa.
- Það er alveg mögulegt að Landsvirkjun geti á næstu árum greitt eiganda sínum ríkinu 150 milljarða á ári í arð. Fjárhæð sem skiptir máli fyrir þjóðarbúskapinn.
Stórpólitískt mál eru svo hugmyndir um lagningu rafstrengs til Færeyja og Evrópu. Er það framtíðin eða eigum við að nota orkuna til atvinnusköpunar hér hjá okkur. Það er alveg ljóst að mikil pressa er frá byggðarlögunum, þar sem orkan er virkjuð að hún verði notuð þar til uppbyggingar.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það þarf að skoða virkjunarmál vel. Álver er ekki lausn allra mála frekar en ESB. Það þarf að taka tillit til margra þátta, þegar virkjað er. Þrónun orkuverðs er t.d. einn þátturinn. Þröngsýn letihugsun á hér ekki við.
Sigurður Þorsteinsson, 30.5.2011 kl. 12:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.