Hvað á ríkið að vera stórt?

Ég hef sýnt ykkur í fyrra bloggi mínum um þetta hvernig ríkið tekur sífellt stærri hluta teknanna til sín. Á 140 árum hefur hlutur ríkisins farið úr 10% í 50%

Stjórnmála - og embættismenn sýna einstakt hugmyndaflug í nýrri skattlagningu. Að embættismenn séu hér liðtækir, er ósköp eðlilegt, ef farið væri að krukka í skatttekjur gætu þeir misst vinnuna.

Það er ástæða til að rifja það upp að reglulega kemur upp umræða um það að það verði bundið í stjórnarskrá, hvað ríkisútgjöld megi vera mikil af þjóðartekjum.  Skattgreiðendur - fólkið hafi einhverja vörn fyrir ásælni ríkisins.  Með öðrum orðum ég er tilbúinn að setja svona mikið í sameiginlega sjóð og ekki krónu meira.

Í stað þess eru þarfir ríkisins óendanlega, enda vita það allir að ef þú ferð þá leið að taka tillit til allra bænarskráa eru bænirnar - þarfirnar óendanlega.

Jóns Kristjánsson f.v. ritstjóri segir frá því að kona hans átti vitran hest. Hann hefði hiklaust kosið hann á þing. Í einni af sínum færslum fléttar hann saman skoðun einræðisherra Rómar og hestsins:

  • Segja nei við öllum bænaskrám, þær eru bara sérhagsmunir,
  • Hafa flatan skatt á öllu 20%,
  • Að valdatími ráðamann sé ekki lengri en 2 ár. ( segjum 5 til vara )

Það getur vel verið að við þurfum að láta hest segja okkur það, en allir þurfa aga. Sá sem hefur þá stöðu að fara sífellt í tékkheftið þitt, er auðvitað agalaus, þar til þú segir hingað og ekki lengra !

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sumarliði Einar Daðason

Vel mælt!

Sumarliði Einar Daðason, 28.5.2011 kl. 19:36

2 Smámynd: Hörður Þórðarson

Takk, vel mælt. Samt er eitt sem ég efast svolítið um. Þessi 50% sem þú talar um. Þú borgar einhverja % áf laununum. Þú borgar vask og gjöld af vörum sem þú kaupir. (Veltu þú því til dæmis fyrir þér hversu mikið lendir hjá ríkinu ef þú kaupir bensín). Ef þú sparar eitthvað er tekinn skattur af vöxtunum sem þú færð og ef það er verðtryggt er tekinn skattur af verðbótunum!

Þú getur ekkert gert án þess að endalaust sé tekinn af þér skattur svo ég myndi giska á að talan 50% sé allt of lág. 

Hörður Þórðarson, 28.5.2011 kl. 20:05

3 Smámynd: Jón Atli Kristjánsson

Takk fyrir innlitið Sumarliði og Hörður.  Hörður þú veltir fyrir þér hlutfallinu. Þetta umrædda hlutfall eru skatttekjur sem hlutfall af þjóðarframleiðslu. Ég hef áður í bloggi mínu birt töflu um þetta, sem sýnir þróunina í ýmsum löndum.

Jón Atli Kristjánsson, 29.5.2011 kl. 19:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband