Fiskurinn í sjónum - auðlind í eigu þjóðarinnar.

 

Breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu hafa verið mikið til umræðu. Sú umræða snýst um framvarpsdrög, sem ekki hafa formlega verið lögð fram. Látum umræðu um það bíða en tæpum á öðru máli.

Ekki er deilt um að auðlindin - fiskurinn í sjónum er eign þjóðarinnar. Handhafar veiðileyfa hafa ákveðin nýtingarrétt, sem miðast við úthlutað árlegt aflamark.

Það er áhugavert að velta fyrir sér eignarétti þjóðarinnar á fiskinum í sjónum, eignaréttur sem reyndar er einskis virði, nema til séu skip  eða önnur tæki til að veiða þennan fisk.  Svo vill til að útgerðarfélög og ýmsir einstaklingar eiga skipin. Þessir aðilar þurfa því á hvor öðrum að halda !

Eignaréttur þjóðarinnar er í sjálfu sér ekki flókið fyrirbrigði, en þjóðin 320.000 einstaklingar er flóknara.  Er það hver og einn sem fer með þennan rétt eða hvernig á að höndla þetta.  Reyndar hefur alþingi, ríkið- stjórnvöld, alþingismenn boðist til að annast þetta mál þjóðarinnar, eins og ekkert sé sjálfsagðara.

Nú tala ég sem einstaklingur einn af 320.000, ég hef aldrei framselt þennan eignarétt minn til alþingis eða stjórnvalda, hvað þá alþingismanna. Ég treyst með öðrum orðum ekki þessum aðilum til að fara með þetta vald, held að það verði misnotað - vinavætt.

Hver á þá að fara með þennan eignarétt þjóðarinnar. Ég tel að fyrsta skref málsins sé að innheimta auðlindagjaldið af fiski þjóðarinnar og leggja það inn á bundinn reikning í Seðlabankanum. Ekkert flókið við þetta. Ég vil safna í tvö ár. ( 10 milljarðar )

Ég vil á þessu tveimur árum halda þjóðfund, þar sem fulltrúar þjóðarinnar ræða það hvað á að gera við þessa peninga.

Ég gæti látið mér detta ýmislegt í hug, en tel að framangreint sé kjörið efni fyrir stjórnlagaráð.  Það væri einnig gaman að vita hvað fólki finnst um þessa hugmynd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Örn Jónsson

Sæll Jón þakka þér góða grein. Ég vill benda á Noreg og auðlinda sjóðinn.

Við stóðum jafnfætis Noregi 1983 en í stað þess að halda áfram með árangursríkt uppbyggjandi  sóknarmark og auðlinda skatt skiptum við í niðurrifs Kvótakerfi og síðan framsal og byrjuðum að safna óða skuldum. 

Ólafur Örn Jónsson, 25.5.2011 kl. 11:25

2 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Hinn 1. janúar 2011 var íbúafjöldi á Íslandi 318.452. Veit ekki hvers vegna þú telur þá ekki með í kringum 88 þúsund manns.

Hverjir eiga nú að véla um sameiginleg mál þjóðarinnar ef ekki þing og framkvæmdavaldið sem raunar þiggur völd sín frá þinginu. Það er miður ef þú treystir ekki þinginu. En er einhvur þjóðfundur betri?

Oft er mjög fróðlegt að lesa pistlana þína en þá kárnar gamanið þegar þú heldur því fram að stundum sé þjóðkjörin samkunda traustsins verð og stundum ekki. Þetta „meikar nú ekki sens“, kæri vinur.

Verst af öllu þegar menn halda að nýtt heiti geri sama liðið eitthvað betra. Með sama liði á ég við þá sem vilja vera fulltrúa þjóðarinnar. Alþingi verður ekkert betra þó við köllum það þjóðfund og þjóðfundur verður ekkert betri þó við köllum hann Alþingi. Lýðveldið verður ekkert betra þó við setjum raðnúmer fyrir framan það eins og Frakkar gerðu.

Mestu máli skiptir fyrir þjóð að það sé samfella í stjórnarháttur, byltingar eiga ekki við, þær eru í sjálfu sér eyðileggjandi. Og þetta tal um spillingu hjá framkvæmdavaldinu verður að taka enda. Það er afar eyðileggjandi. Étur þar hver upp eftir öðrum en enginn getur komið með dæmi um spillta embættismenn.

Spilling getur ekki þrifist nema um hana sé sátt meðal emættismanna, þeirra hátt settu sem og hinna. Í litlu þjóðfélagi lekur allt út, engin leyndarmál eru til. Hjá stjórnarráði Íslands starfa eitthvað um 2500 manns. Er eitthvað vandamál að skilja hina bersyndugu frá hinum sem ekkert hafa gert af sér? Nei, það er betra að slá um sig og segja einhvern ótilgreindan hóp spilltan.

Hverjum treystir þú ekki á Alþingi? Annað hvort kýstu þá ekki eða stofnar þinn eigin flokk og býður fram. Kannski endar það eins og með Hreyfinguna eða þú nærð árangri og verður til sidst eins og Jóhanna. Veit ekki hvort er verra. Kannski geturðu orðið óháður eins og Ögmundur, hlaupið inn og út úr ríkisstjórn eftir því hvernig vindurinn blæs.

Hugmyndin um að auðlindagjaldið fari inn á bundinn reikning í Seðlabankanum og vaxti sig þar finnst mér frábær.

Bið svo að heilsa þér, gamli félagi.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 25.5.2011 kl. 14:59

3 Smámynd: Jón Atli Kristjánsson

Sæll félagi Sigurður ferðafrömuður með meiru. Þakka þér fyrir ábendinguna um fólksfjöldann, þarna hafði ég flýtt mér um of. Ég á örugglega skammir skilið og þakka þér fyrir þetta innlegg.  Ég veit að það er mikið af góðu fólki á Alþingi og þekki marga persónulega. Þegar hinsvegar kemur að auðlindamálum eru miklir hagsmunir og verðmæti í spilinu og mér finnst þar kallað eftir ábyrgð og aðhaldi.

Ég fór nú ekki í þessu stutta texta djúpt í róttækar útfærslur á stjórnskipan, fulltrúalýðræði eða ekki osfv. Það eru margir vitrir menn að hugsa um þau mál þessa dagana.  Best kveðjur.

Jón Atli Kristjánsson, 25.5.2011 kl. 15:29

4 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Alltaf gaman að fá að „skammast“ í góðum mönnum sem hafa eitthvað vit á því sem þeir eru að gera.

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 25.5.2011 kl. 15:32

5 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Heit umræða. Þá ert þú væntanlega sammála Styrmi Gunnarssyni þar sem hann vill beint lýðræði? Þessa umræðu þarf að taka með rökum með og á móti.

Sigurður Þorsteinsson, 25.5.2011 kl. 21:38

6 Smámynd: Ólafur Örn Jónsson

Orð Styrmis vor svo sannarlega orð í tíma töluð og ættu menn að fara að viðurkenna að eitthvað fór úrskeiðis á Davíðs árunum.

Eins líta vel út auðlinda tillögurnar sem eru að sjá dagsins ljós hjá stjórnlagaráðinu.

Þessi mál verða að komast á hreint þar sem greinilega var grynnra á spillingu á landinu bláa en menn óraði.

Ólafur Örn Jónsson, 27.5.2011 kl. 11:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband