23.5.2011 | 06:48
Að tala meira saman - samræðupólitík ?
Fjöldi einstaklinga tjáir sig í ræðu og riti, segir sína skoðun. Hið besta mál, en ég legg sérstaklega við hlustir ef einhver segir frá rannsóknum sínum og niðurstöðum þeirra. Finnst það gefa umræðunni eitthvað nýtt og hafa meira vægi, en eins manns álit.
Mér finnst vandi okkar hafa verið vel rannsakaður og hann hefur verið greindur fram og aftur. Það sem vantar er að þessi lærdómur sé settur í eitthvað samhengi við líðandi stund og stuðli að uppbyggilegri framtíðarsýn.
Þetta er ekki auðvelt. Sú umræða og átök sem fer fram um stefnu okkar þjóðar fyrir næstu ár, er lituð af fyrri reynslu, eins og sögumanni hentar best. Reynsla er sem sé ekki einhlít eða óumdeild. Inn í þetta kemur einnig að vegna þess glundroða og ótta sem skapaðist vilja allir stjórna, ég veit best.
Reynsla s.l. 10 ára var að of fáir réðu. Valdið var í fámennum hópi, sem sagði við hina, við höfum fullkomna stjórn á þessu látið okkur um þetta. Í öllum bænum verið ekki að tefja okkur með einhverju reglugerðarfargani og skriffinnsku. Lifi hinn frjálsi markaður.
Ef það réðu of fáir áður, þá er núverandi reynsla okkar sú að nú ráða of margir. Erum við mögulega að tala úr okkur allan mátt þ.e. við fáum enga niðurstöðu í málin.
Við tölum niður fulltrúalýðræði og í staðinn á að koma þjóðræði. Mjög falleg sýn og minnir á roðann í Austri.
Fulltrúalýðræði datt ekki af himnum ofan. Það byggir á reynslu þjóðanna, hírarkískri uppbyggingu valdsins. Reynslu um að það sé eitthvað vald til að framkvæma það sem gera þarf. Vald með öryggisventli, það er hægt að skipta út þessu valdi.
Erum við örugglega á réttri leið, á ekki fulltrúalíðræðið enn fullan rétt á sér og sérstaklega hér hjá okkur í fámenninu.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég tel að stjórnin fyrir hrun hafi að mörgu leiti staðið sig nokkuð vel, en starfaði full lengi.Hruninu olli siðlausir yfirmenn banka og fjármálastofnana og endurskoðendur þeirra .
Fulltrúalíðræðið á enn rétt á sér
Snorri Hansson, 24.5.2011 kl. 02:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.