21.5.2011 | 11:18
Landið sem rís örugglega.
Í þættinum landið rís 15.5. s.l var Jón Sigurðsson f.v. formaður Framsóknarflokksins gestur Ævars og Jóns Orms.
Í upphafi síns máls sagðist Jón, vera frekar svarsýnn á næstu misseri. Fólk hefði notað varsjóði sína t.d. séreignasparnað, það væru teikn um minnkandi verslun. Hann væri tregur að trúa því að sól sé í heiði. Efnahagshlið Íslands væri hinsvegar sterk, við værum ekki illa sett sem þjóð. En þjóð í stjórnmálakreppu, einnig í andlegri kreppu. Við höfum ekki fundið leiðina áfram, erum í sjokki, erum ekki að horfast í augu við veruleikann.
Jón var í þessu spjalli heiðarlegur með það að hann sjálfur hefði ekki fundið hina einu sönnu leið í stöðunni.
Mér hefur alltaf fundist Jón vera vitur maður og hlusta vel á allt sem hann segir.
Það mér fannst áhugavert í hans tali var þetta:
- Á tímum eins og nú er mikil eftirspurn eftir sterkum leiðtoga, sem hefur lausnir á hverjum fingri. Hann tók Ítalíu og Berlusconi, sem dæmi og einnig sem dæmi um hvernig færi fyrir svona hugmyndum. Hann nefndi líka Reykjavíkurborg.
- Jón ræddi um að það fólk sem nú ræður Íslandi hafi tekið að sér gífurlegt verkefni og hafi staðið sig vel í mörgu það hafi alla hans samúð. Auðvelt er að taka undir þau orð Jóns.
Við sem þjóð verðum að hafa umburðarlyndi fyrir þeirri upplausn sem ríkir hjá okkur. Það er hinsvegar margt að gerast og á endanum mun hristast út úr þessu okkar leið til framfara.
Það virðist gleymast að þjóðin kaus sér vinstri stjórn og vinstri gildi. Hverjum á að koma það á óvart að það fólk sem nú stjórnar telji það skildu sína að láta reyna á þau sjónarmið.
Það virðist líka gleymast, að ef eitthvað er að marka vinstri og hægri, skiptist þjóðin nokkurn vegin í jafnar fylkingar. Þarf þá að koma á óvart að ekki gangi allt greiðlega fyrir sig.
Vinstri menn hafa alltaf haft skýrari sýn á sín grunn gildi en hægri menn. Áratugur hægri manna endaði með ósköpum. Sá breiði hópur hefur ekki náð vopnum sínum, margt á hugmyndafræði þessa hóps, reyndist tálsýn.
Við íslendingar höfum þrátt fyrir allt sterkan grunn til að standa á. Út úr skammtíma raunum okkar mun koma sterkari og vitrari þjóð, með eða án sterks leiðtoga.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já, Jón Atli gott innlegg hjá þér að vanda. Ég er þó ekki sammála Jóni Sigurðssyni sem ég þó virði mikils, hvað varðar hættuna á á þörfina fyrir leiðtoga. Sú þörf er til staðar en leiðtogi er ekki hættulegur því að skilgreining á leiðtoga er að hann notar lýðræðið og hlustar á fólk. Hættan er á að fá foringja til valda sem hefur allt annað en hagsmuni almennings að leiðarljósi og það er hættulegt.
Sigurður Þorsteinsson, 22.5.2011 kl. 00:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.