Staða neytandans.

Mikið og gott verk hefur verið unnið á sviði neytendaverndar.  Þar má segja að takist á einstaklingurinn og hinum megin borðs, fyrirtæki og stofnanir, jafnvel ríkið sjálft.

Löggjöf hefur verið byggð upp til að vernda og hjálpa einstaklingum, en ekki má gleyma að þessi löggjöf er einnig fyrir hinn mótaðilann.

Rifja má upp nokkur dæmi um vígstöðuna í þessum málum og aðstöðumuninn:

  • Staða flugfarþega gagnvart flugfélögum og reyndar farþega almennt gagnvart flutningaaðilum,
  • Staða farsímanetenda gagnvart símafélögum, ef farið er á milli landa og flókið net þessara aðila nýtt.
  • Staða þeirra sem veikjast á ferðalögum og þurfa skyndilega á hjálp fjölþjóðlegs kerfis að halda.

Í sumum af ofangreindum dæmum hafa einstök lönd ekki haft mátt til að jafna á merinni og samtök eins og ESB gripið inní. Það þarf með öðrum orðum gífurlega slagkraft og samstöðu margra aðila til að ná hér árangri.  Um leið eru þessi mál flókin, inn í þau blandast, viðskiptafrelsi, samkeppnistaða, og aukin völd fyrirtækja og fyrirtækjasamstæðna.

Hvað sem líður samkeppni, sem að sjálfsögðu er mikilvæg, er hægt að fara yfir markaði eftir markaði og það eru 5-10 aðilar sem stjórna þar öllu.  Hugtakið frjáls samkeppni á því miður ekki við á fjölda markaða, og hvað sem sagt er upphátt, er leynt og ljóst unnið að markaðsyfirráðum.

Neytendamál eru því grimmasta alvara og þar duga engin vettlingatök. Þar er tekist á um mikla hagsmuni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband