Norðurskautsráðið.

Á fundi ráðsins í Nuuk 12. maí s.l. voru lagðar fram nýlegar vísindaskýrslu. Helstu fréttir eru:
  • Ísinn á norðurslóðum hopar hraðar á s.l. áratug en áður. Allt er þetta vegna hækkaðs hitastigs,
  • Rannsóknir hafa verið gerðar á hegðun olíu og spilliefna í köldum sjó og ís. Einnig úttekt á aukinni kvikasilfursmengun.

Skilaboðin eru að þetta er mjög viðkvæmt svæði og krefst þess af öllum hagsmunaaðilum að náin samvinna sé viðhöfð og ríkar öryggiskröfur gerðar til allra  er starfa á þessu svæði.  Samningur sem gerður var og undirritaður á þessum fundi markar sannarlega ákveðin tímamót.

Allt er þetta gleðilegt að þessar þjóðir vinni saman með fyrirbyggjandi hætti í stað þess að eitthvað stórslys verði til að þjappa þjóðunum saman.  Það er einnig ljóst að eigi hlutaðeigandi þjóðir að hafa roð við þeim fyrirtækjum sem sækja nú inn á þessa svæði t.d. olíufélögunum þurfa þessar þjóðir, þó stórar og öflugar séu, að standa saman.

Það er ekki eins og stóru olíufélögin séu ekki stór og öflug ein og sér, heldur hafa þau myndað sérstaka fyrirtækja klasa til að vinna á norðurslóðum.  Þau vita sem er að kostnaðurinn er gífurlegur og ætla greinilega að standa saman á þessu svæði. 

BP mengunarslysið í Mexicoflóa er lexía fyrir alla. Þar sýndu sig óvönduð vinnubrögð stórfyrirtækis, ekkert varaplan nema það sem búið var til á ögurstundu.  Mengunarslys sem kallaði á aðgerðir fjölmargra, og einnig opinberra aðila. Tjón og kostnaður, sem hefði getað riðið þessu stórfyrirtæki á slig og reikningurinn  þá sendur skattgreiðendum.

Þær þjóðir sem eru aðilar að norðurslóðum sjá greinilega að það er þeirra hagur að standa saman.  Stóra verkefni þeirra er að standa saman í viðskiptum með þær auðlindir sem er að finna á þessum svæðum. Stíga út úr ramma þjóðríkisins og að mínir hagsmunir koma fyrst.  Ekkert þessara ríkja hefur í reynd efni á því. Við semjendurnir í þessum heimi stórviðskiptanna hafa miklu sterkari samningsstöðu en hvert og eitt þessara ríkja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband