17.5.2011 | 08:43
Fjögurra blaða smári.
Við höfum alltaf haft þörf fyrir ævintýrið um að geta breytt lífi okkar með einni ósk. Við munum eftir sögunni um Aladín og töfralampann. Ef lampanum var strokið kom andinn upp og sagði master, hver er ósk þín. Óskalistinn gat verið langur, en að giftast konungsdóttur var nú ekki ónýtt í gömlu sögunum.
Vonin er eitthvað, sem við á okkar erfiðu tímum, verðum einfaldlega að rækta. Við verðum að gera það saman það er okkar sameiginlega verkefni. Snúa neikvæðum hugsunum upp í jákvæðar eiga okkur drauma og vonir.
Umræðan um vonina þarf ekki að vera pólitísk eða efnahagleg. Hún þarf heldur ekki að vera sundrandi. Hún á að snúast um allt það fallega og góða sem við höfum og eigum enn sjáum ekki alltaf.
Við þurfum að hjálpast við að viðhalda voninni. Við verðum fyrst af öllu að trúa því sjálf að það sé von. Þeir sem við tökum mark á þurfa að styðja von okkar og trú á okkur sjálf og framtíðina. Trúin og kirkjan hafa hér án efa hlutverki að gegna.
Einhvern veginn á vonin erfitt uppdráttar þessa dagana. Úrtölu- og bölsýnisraddir eru háværar, þær eru settar fram af krafti þess sem telur sig hafa rétt fyrir sér. Rödd vonarinnar er lágróma í beljanda bölsýninnar.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.