Slóvensk sendinefnd í heimsókn.

Hér hefur verið í heimsókn öflug sendinefnd frá Slóveníu með forseta landsins í broddi fylkingar.

Var á fundi á hótel Sögu, þarf sem fulltrúar viðskiptalífs í báðum löndunum hittust.

Íslandsstofa skipulagði heimsóknina, sem gert var af mikilli fagmennsku. Forseti okkar Ólafur Ragnar og Mr. Turk, forseti Slóveníu ávörpuðu gesti.

Flott ræða hjá Ólafi eins og hans er von og vísa.  Hann vakti athygli á:

  • Íslensk fyrirtæki hefðu á s.l. áratug náð miklum áhrifum á stuttum síma. Þetta hefur einnig átt sér stað í bankaútrásinni,
  • Við eigum í dag fyrirtæki sem eru í fremstu röð á sínu sviði,
  • Við eigum í dag fyrirtæki og tækniþekkingu í fremstu röð á svið endurnýjanlegrar orku.
  • Sparnaður Íslendinga af notkun endurnýjanlegrar orku væri um 150 milljarðar á ári.

Ísland og Slóvenía ættu að vinna saman.  Ekki aðeins milli landanna, heldur að skapa fyrirtækjaklasa, sem gætu náð fótfestu á stærri mörkuðum.

Turk forseta var í ræðu sinni tíðrætt um græna orku og samvinnu landanna á því sviði.

Þegar ég hlustaði á Ólaf tala um hvernig gömlu bankarnir urðu „ major players „ á stuttum tíma, kom upp í huga minn.

Ef nýr banki kemur inn á íslenska markaðinn, þar sem fyrir eru stórir bankar og fjöldi minni. Hvaða viðskiptum nær hann ?

  • Viðskiptamönnum sem ekki fá viðskipti með eðlilegum hætti, eða hefur verið hent út úr kerfinu,
  • Viðskiptamönnum sem þurfa meiri peninga, en aðrir bankar hafa verið tilbúnir að lána,
  • Almennt áhættusamari viðskipti. ( einnig lán til eigenda sinna )

Upplýsingar úr lánabók bankann bendir til að þetta hafi einmitt verið staðan.  Um leið lærdómur og hluti af reynslubankanum.

Það er alveg ljóst að Slóvenía er áhugavert land fyrir okkur. Lykill að stóru svæði og land með reynslu sem við getum nýtt okkur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband