Þjóðarauðurinn.

Einstaklingar eiga eignir, en sameiginlega eigum við líka miklar eignir, sem byggðar hafa verið upp af fyrri kynslóðum. Þegar svartsýnin nær tökum á okkur gleymum við þessum staðreyndum. Í skýrslu sem Gylfi Magnússon hagfræðingur samdi 2006 segir m.a.

„Verðmætin sem fyrri kynslóðir Íslendinga skila til næstu kynslóða eru gífurleg.      Aldrei hefur verðmætaaukningin orðið meiri en á tuttugustu öldinni. Sé litið á árin frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar þá kemur í ljós að verðmæti þeirra helstu veraldlegu gæðu sem þjóðin á, húsa, vegakerfis, virkjana og annarra mannvirkja hefur nær ellefufaldast. Á sama tíma hefur fjöldi Íslendinga ríflega tvöfaldast svo að verðmæti á mann hafa því sem næst fimmfaldast.  Allt hefur þetta verið byggt upp með vinnu þeirra Íslendinga sem voru á vinnumarkaði á þessum tíma, þar á meðal þeirra sem nú eru farnir að reskjast. Allt erfist þetta einnig með einum eða öðrum hætti frá kynslóð til kynslóðar.

Það hefur líka verið byggt upp nútímalegt þjóðfélag með stjórnkerfi, reglum og reynslu, hagkerfi með öflugum fyrirtækjum, hagnýtum viðskiptavenjum og umfram allt vel menntað fólk til að reka allt saman. „

Þegar kreppan skellur á 2008, voru skuldir ríkissjóðs tiltölulega litlar. Höfðu skipulega verið greiddar niður á velmektarárum okkar, staðreynd sem oft gleymist.

Væri það útópískt að segja að við höfum verið vel undir kreppuna búin !

Þegar við stynjum undan fargi dagsins, eigum við ekki að gleyma því sem þessi fámenna þjóð okkar hefur áorkað.  Hvað hefur það kostað á verðlagi dagsins í dag að byggja upp það vegakerfi sem við þó eigum í dag?

Við erum einnig stolt af lífeyrissjóðakerfi okkar og þeim eignum sem þar eru. Í Vinnunni blaði Alþýðusambands Íslands, ( vor 2011 ) eru nefndar 6 ástæður fyrir því að ASÍ vill jafna lífeyrisréttindi.  Í þeirri upptalningu kemur fram, að þrátt fyrir að kerfið sé gott, þarf ýmislegt þarf að laga í þessi kerfi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband