Hagfræði kreppunnar:

Hækkað verð á vörum og þjónustu minnkar kaupmátt okkar.  Fræðin segja að við þessar aðstæður, metum við nákvæmlega öll okkar kaup, hvar er hægt að spara og hversu mikið.

Hvað sem þessu líður, er þetta það sem allir gera ?  Líklegast er að við gerum einhverskonar áætlun, formlega eða óformlega, um einstaka útgjaldaliði heimilisins. Við áætlum eitthvað fyrir föt, skemmtanir, rekstur á bíl, vegna húsnæðis. osfv.   Framfærsluvísitalan segir okkur þessa sögu og hvað fer í hvern pott.  Breskar húsmæður voru með nokkra bauka á arinn hillunni, þar sem þær söfnuðu fyrir ákveðnum útgjaldaliðum

En hvernig hegða neytendur sér:

Ef verð í fötum hækkar byrjum við á að skera þar niður, áður enn við skerum niður á öðrum sviðum neyslu.  Þó þetta sé sennilegast er ekki til mikil raunveruleg vitneskja um þetta.

Á krepputímum er sérstaklega áhugavert að vita hvernig neytendur hegða sér.

Tveir hagfræðingar  Justine Hastings frá Brown University og  Jesse Shapiro frá University of Chicago's Booth School of Business, fengu upplýsingar um kaup á bensíni frá stórri verslunarkeðju, fyrir tímabilið 2006 til loka árs 2009.

Verð á bensíni hækkandi mjög mikið á þessu tímabili. Fyrst viðbrögð neytenda var að kaupa ekki bensín með hárri oktan tölu, heldur venjulegt bensín ( 95 oktan )

En hvað um önnur kaup. Þeir fengu einnig fleiri upplýsingar frá sömu aðilum.  Þeir skoðuðu sérstaklega kaup á ½ gallons brúsum af appelsínu safa.  Verslunarkeðjan bauð upp á 5 merki, 4 USA og svo þeirra eigið.

Þeir sáu að þó fólk sparaði með því að kaupa ódýrara bensín, þá þýddi það ekki að fólk keypti ódýrari appelsínusafa, til að bæta það upp sem það tapaði við bensínkaupin.  Þeir töldu sig finna samband milli þess að hærra bensínverð, jók eftirspurn eftir dýrari appelsínusafa.

Hér á ferðinni svipuð niðurstaða, eins og óformlega kannanir hafa sýnt hér heima, það er að fólk fer meira á veitingahús þegar kreppir að.

Í mótlætinu hafa allir tilhneigingu til að vilja gera vel við sig á einhverju sviði, jafnvel þó þeir hafi ekki efni á því !!  Eins eru hér kaupsterkir hópar sem komu vel út hruninu og græddu jafnvel á því.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband