Greiningardeildir gömlu bankanna.

Greiningardeildir föllnu bankanna voru mjög áberandi í viðskiptalífinu hér á árum áður. Varla var hægt að opna svo fjölmiðil að þar væri ekki álit einhverrar greiningadeildar. Í þessum deildum sat mikið af hámenntuðu fólki, sem dældi út áliti á öllum hlutum, þjóðhagsspám, og allskyns úttektum. Fólk úr þessum deildum voru mjög vinsælir viðmælendur í spjallþáttum, allt var eitthvað spennandi í kringum það, það var með í vasanum lykilinn að gróðanum.

Þessar deildir tóku yfir alla vinnu og umræðu um efnahagsmál.  Það var um það þegjandi samkomulag að bankarnir önnuðust þessa þjónustu. Þjóðhagsstofnun hafði verið lögð niður og Seðlabankinn dró sig inn í sína skel.  Fjármálaráðuneytið byggði reyndar upp teymi sérfræðinga og gaf út álit.  En það voru viðskiptabankarnir og greiningadeildir þeirra sem voru „ running the show „

Fyrir utan að hafa skoðun á því hvernig ætti að stjórna þjóðfélaginu, spáðu starfsmenn deildanna fyrir um hlutabréfaverð og tóku þátt í einskonar keppni um árangur og spádómsgáfu.  Toppurinn á þessari visku allri var spá þessara aðila um hlutabréfaverð á árinu 2007. Það ár var spáin 30% hækkun en á því ári féll verðið um 50%, eða 80% frávik.  Þrjú árin þar á undan hafði verð hlutabréfa hækkað um 30% á ári. Mini kreppan á hlutabréfamarkaðnum 2007, þurrkaði út verðmæti á bilinu 2000-3000 milljarðar.  Eins og rannsóknarskýrslan greinir frá hófst frá þessum tíma, tími handstýringar á hlutbréfaverði bankanna, sem á þessum tíma var stór hluti af veltu markaðarins.

Á þessum tíma voru bankarnir stórir hagsmunaaðilar á hlutabréfamarkaði. Beinar og óbeinar ráðleggingar þeirra til almennings gátu ekki verið hlutlausar, hagsmunarárekstrar voru augljósir. Greiningadeildirnar voru þarna mjög áberandi.

Nýju bankarnir hafa farið mjög hægt í sakirnar á þessu sviði.  Jafnframt er það mjög skynsamlega leið sem Landsbankinn ætlar að fara, að fá utanaðkomandi aðila til starfa sem greiningaraðili fyrir bankann.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Ágústsson

thetta er rett hja ther en gaman vaeri ad vita hvad topparnir ur fyrrum greyningardeildum eru nuna

Magnús Ágústsson, 27.4.2011 kl. 07:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband