Í húsi moskunnar.

Hef verið að lesa þessa ágætisbók, eftir Kader Abdolah. Sagan segir frá stórfjölskyldu í Íran og fjallar um lífið í húsi moskunnar - íamana, ömmur, teppakaupmenn, te drykkju, trú, keisarann og Bandaríkin, Ayatollah, kommúnista, hefndir, ástir, sorg, náttúru og hefðir.  Hús moskunnar er frábær bók, hún er öðruvísi en þær spennusögur sem nú fylla búðirnar. Það er tilvaldið að lesa hana núna þegar ólga er mikil í þessum heimshluta og í arabaheiminum.

Þegar heittrúarbylgja Khomeini skellur á landinu, þagnar hláturinn og skothríð tekur við af bænakalli. Þá bregðast íbúarnir í Húsi moskunnar við á ólíkan hátt; sumir beygja sig undir ofurvald klerkanna, aðrir rísa upp til varnar og gjalda fyrir með frelsi sínu og lífi - og svo eru þeir sem ganga ógnarstjórninni á hönd og gerast skósveinar hennar og refsinornir.  Grimmdin var ólýsanleg og allt  í nafni trúarinnar. Höfundurinn fléttar á meistaralegan hátt inn í alla söguna persónur úr Húsi moskunnar.  Þrátt fyrir allt mótlætið er líka mikil fegurð í þessari sögu.

Sagan rifjar upp gamla tíma fyrir mig, þegar ég var í skóla í Englandi. Í skólanum voru margir strákar frá Íran, Persíu eins og þeir vildu nefna landið.  Þetta voru synir ríkra foreldra og pabbi þeirra vann yfirleitt í olíuiðnaðinum. Veldi keisarans og glamur var ráðandi á þessum tíma.  Þeir voru í Englandi til að læra ensku og kynnast heiminum.  Báðust fyrir 2 á dag eins og sannir múslimar.  Ég missti svo alveg af þessum strákum og vona, að ayatollah- tíminn hafi ekki orðið þeim að fjörtjóni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Við slíkan lestur sér maður alltaf veruleikann hér í örlítð öðru ljósi, en jafnframt hvað maður líkist mönnum hvar sem þeir nú búa.

Sigurður Þorsteinsson, 25.4.2011 kl. 14:40

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Óska þér og fjölskyldu þinni gleðilegra páska og sumars. Annars fannst mér hann fara að hausta fullsnemma.

Sigurður Þorsteinsson, 25.4.2011 kl. 14:41

3 Smámynd: Kolbrún Vala Jónsdóttir

Ég er einmitt að lesa þessa bók núna, margt sem vekur mann til umhugsunar. Hlakka til að halda lestrinum áfram.

Kolbrún Vala Jónsdóttir, 7.5.2011 kl. 12:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband