Nóttin kostar 2.500 kall.

Á brúðkaupsnótt þeirra , sagði hin unga brúður kankvíslega við brúðgumann, nóttin hjá mér kostar 2500 kall. Hann var svo æstur, að hann samþykkti þetta strax.

Næstu 30 ára höfðu þau þennan hátt á, nóttin kostaði 2500 kall.  Honum fannst þetta æði, hún gæti notað þetta til að kaupa sér föt eða hvaðeina sem hún vildi.

Dag einn þegar konan kom heim, var maður hennar heima og mjög drukkinn. Hann útskírði það fyrir henni að rekstur fyrirtækisins þeirra hefði gengið illa og nú væri það gjaldþrota og hann atvinnulaus. Hann væri orðin 55 ára og ekki auðvelt fyrir hann að fá vinnu sem greiddi laun, eitthvað í námunda við það sem hann hefði haft.  Fjárhagur þeirra væri því í rúst.

Konan hlustaði á þetta allt hin rólegasta. Þegar hann var búinn, rétti hún honum sparisjóðsbók, sem reglulega hafði verið lagt inn á í 30 ár. Innstæða var um 120 milljónir króna. Hún sýndi honum einnig hlutabréf í bankanum þeirra að virði 240 milljónir og sagði stolt að þau væru meðal stærstu hluthafa í bankanum. Hún sagði honum einnig að í 30 ár hefði hún sparað og fjárfest „ ástarpeningana „ þeirra og þetta væri árangurinn.

Maðurinn var gjörsamlega orðlaus þegar hann horfði á þessa peninga og hlutabréf, en að lokum kom hann upp orði og hrópaði, ég hafði ekki hugmynd um hvað þú varst að gera!!  Hefði ég vitað þetta hefði ég gefið þér fyrirtækið.

Karlmenn vita stundum ekki hvenær þeir eiga að halda kjafti !!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Fyndin saga, en 2500 kr. x 365 (hver einasta nótt!) x 30 ár = 27.375.000 kr., rúmar 27 milljónir, svolítið minna en þessar 360 milljónir sem hún átti að lokum. En hún hefur eflaust lagt þetta inn á hávaxtareikninga (væntanlega Icesave fremur en það, sem Landsbankamenn mæltu með hér á Íslandi: peniningamarkaðssjóðina "öruggu"!) og í hlutabréf "öruggum" uppgripa-fyrirtækjum fyrir bankakreppuna. Gott og vel, það er séns á því, að þetta hafi gengið upp!

PS. Óvenju-skemmtilegt blogg hagfræðings, í tengslum við tilveru fólks!

Jón Valur Jensson, 23.4.2011 kl. 17:12

2 Smámynd: Jón Atli Kristjánsson

Gleðilega páska öll. Þakka þér Jón Valur fyrir þessa góðu útreikninga. Mögulega er þetta frekar " skemmtisaga "  og til að létta okkur lund.  Hinsvegar getur fjárfesting í réttum hlutabréfum skilað ótrúlegri ávöxtun, þó það sparnaðarform eigi þessa dagana heldur á brattan að sækja.

Jón Atli Kristjánsson, 24.4.2011 kl. 12:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband