Frekjudallar í samtökum atvinnurekenda og hjá LÍÚ.

Samtök atvinnurekenda (SA ) eiga sér fáa formælendur þessa dagana.  Frekja þeirra þykir með afbrigðum, þeir eru dónalegir við Jóhönnu, eru í vasa LÍÚ, halda þjóðinni í gíslingu. Þessi listi gæti verið miklu lengri.

Fáir velta fyrir sér stöðu þessara aðila við samningaborðið:

  • Þeir eru með heilu atvinnugreinarnar, sem eru í þroti,
  • Innan þeirra vébanda eru 7000 fyrirtæki sem skulda langt umfram eignir. Þeirra á meðal mörg sjávarútvegsfyrirtæki,
  • Þeirra fyrirtæki standa undir greiðslum til atvinnulausra - atvinnuleysisbætur, 20-25 milljarðar á ári,
  • Samdráttur hefur verið á flestum sviðum, þó einhver von sé til að það fari að rofa til.
  • Ljósið í myrkrinu er að ýmsar útflutningsgreinar hafa gengið vel.

Það því ástæða til að spyrja eru ekki „ allir hressir „  Frekja SA kann mögulega að snúast um ótta. Þörf á launahækkunum er augljós. Launafólk er þrautpínt, en raunveruleg geta til verulegra hækkana er engin.  Áhyggjur þessara vönu manna er einnig að þeir verði dregnir inn í eina verðbólgusamningana enn.

Góðu fréttirnar eru hinsvegar að aðilar vinnumarkaðarins SA og ASÍ standa saman með ákveðnum hætti. Það er augljóst að þessir aðilar skilja stöðu hvers annars. Forsenda sem er grunnur allra vitlegra samninga á vinnumarkaði.

Ég var spurður að því um daginn. Manst þú hvenær ríkið fór að spila þessa svakalegu rullu í kjaraviðræðum. Það virðist enga samninga hægt að gera nema ríkið komi með „ pakka „ :

  • Mér finnst þessi þróun vera nokkuð gömul og rek hana til 1970. Ef svo er hún 40 ára.
  • Gullna regla ríkisins var að hinn almenni vinnumarkaður semdi fyrst, það kæmi svo á eftir,
  • Gleymum hinsvegar ekki að ríki og sveitarfélög eru stærstu atvinnurekendur landsins. Hærri laun hjá ríkinu þýðir hærri skatta eða niðurskurð. Hvorugur kosturinn góður. Betra að SA og ASÍ semji ekki um einhverja vitleysu.

Allir sanngjarnir menn vita að LÍU er aðili að SA.  Það að SA styður þessa mikilvægu atvinnugreina, með mætti sinna samtaka ætti ekki að koma neinum á óvart. Sjávarútvegurinn og framtíð hans er grundvöllur byggðar og atvinnu fólks vítt og breytt um landið. Málið er miklu stærra en einhver óvild í garð LÍÚ.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Er til einhvað afl á Íslandi sem getur "barist" á móti LÍÚ?

Sigurður I B Guðmundsson, 20.4.2011 kl. 10:08

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Úlfur, Úlfur! og allir þekkja söguna þá. Hvað hefur breyst í áróðri LÍÚ frá því fyrstu aflaheimildir voru gefna rút? ,ekkert, nákvæmlega ekkert. Á meðan allt lék í lyndi voru fluttar og ritaðar langlokur um "fórnir" útgerðarinnar þegar Hafró skerti kvóta (oft að beiðni LÍÚ til að stabílisera verð á leigukvóta með skortsölu.)

Af því berast sögur að fiskiskip í Vestmannaeyjum -nýbyggt - en engin endurnýjun s.l. 1000 ár eða svo V. Egilsson -hafi verið fjármagnað með leigu á kvóta á meðan á smíðinni stóð. Útgerðarrisar hafa selt sig út úr greininni fyrir milljarða og kvótagreifarnir hafa lifað á leiguþrælum sumir hverjir án útgerðar. Þetta veit öll þjóðin.

Því hefur verið haldið fram að öll útgerð hafi verið á hausnum á Íslandi áður en kvótasetningin var sett á og þetta er næstum því dagsatt! Málið er bara afar einfalt. Þar til fiskmarkaðirnir komu var notast við ferskfiskmat á vegum ríkisins. Síðan var einhver "verðlagsnefnd" sem reiknaði út verð á fiski eftir gæðaflokkum. Ég þekki þetta af því ég vann við fiskmatið á annan áratug.

Það var viðburður að sjá vel kældan og frágenginn fisk í löndun áður en fiskmarkaðair komu. Í dag dettur engum í hug að landa fiski sem komið hefur í flottroll og er svo blóðsprengdur að hann minnir á nautakjöt. Slíkan farm fékk ég til að meta og fleiri en einn. Útgerð á Íslandi þarf að stokka upp sem og veiðireglur. Aflamarkskerfið er búið að skaða þjóðina um mörg hundruð milljarða og væri búið að eyðileggja stofnana líka með brottkastinu ef þeir væru bara ekki svona miklu sterkari en Hafró fær að viðurkenna. 

Við megum ekki leyfa okkur að fyrirskipa brottkast "að viðlagðri aðför að lögum" eins og gert er í dag.

Fiskur mun halda áfram að veiðast á Íslandi þótt öll skip stærstu og gráðugustu útgerðarfyrirtækja sigli í land.

Og markaðir fyrir fisk eru ekki eign útgerða vegna þess að markaður myndast þegar kaupandi biður um vöru og bíður eftir henni. Við eigum ekki að tala um þessa hluti eins og börn eftir að við vöxum upp úr bernskuárunum og matrósafötin eru orðin endurminning í klæðaskápnum. 

Árni Gunnarsson, 20.4.2011 kl. 10:36

3 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Góð grein Jón Atli. Það vantar menn eins og Einar Odd sem þykir vænt um fólkið sitt og skilur hvað fyrirtækin eru megnug að gera. Það þarf að sjá heildarmyndina hvernig við sem þjóð getum gert til þessa að byggja þjóðfélagið upp. Nú þarf stétt með sétt. 

Sigurður Þorsteinsson, 20.4.2011 kl. 22:43

4 Smámynd: Jón Atli Kristjánsson

Við tökum umræðu um sjávarútvegsmál við betra tækifæri. Vandi þeirrar umræðu eru nú ekki meiri en " 30-60 mín. umræða milli Jóhönnu og LÍÚ " ! Kjarasamningar eru alltaf stórmál og sorglegt ef 3ja ára samningur eru útaf borði.  Einar Oddur var gamall skólabróðir og vinur og féll frá langt um aldur fram.  Það þarf góða og víðsýna menn eins og hann til að vinna þessa mikilvægu vinnu.

Jón Atli Kristjánsson, 22.4.2011 kl. 11:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband