Gengis og gjaldmiðlamál.

Fulltrúi Danske Bank var staddur hér á landi í liðinni viku og kynnti m.a. efnahagsspá bankans um Ísland. Við höfum lært það að reynslu að betra er að hlusta á útlendinga og þá sérstaklega hagfræðinga þessa banka.

Það sem vakti sérstaka athygli mína á spá þeirra var, að íslenska krónan væri „ undervalued „  sem svaraði 25% m.v. PPP ( Purchasing Power Parity )  Á mannamáli þýðir þetta að gengi krónunnar gæti á næstu 2-3 árum styrkst um þessi 25%.  Áhrif þessa væru mikil:

  • Gengi Evru færi í um 120 krónur,
  • Áhrif á innflutningsverð yrðu mikil. Að sama skapi verri fréttir fyrir útflutning,
  • Lán í erlendri mynt, myndu lækka. Hvort þetta þýðir eitthvað fyrir heimili og fyrirtæki, er erfitt að segja í þeim hrærigraut, sem þau mál er í.

Umræða hefur einnig verið um framtíðargjaldmiðil fyrir Ísland, sem vert er að fylgjast með:

  • Jón Steinsson ( JS )hagfræðingur ritar grein í Fréttablaðið, sem hann kallar 4 kostir í gjaldmiðlamálum,
  • Orri Hauksson ( OH ) framkvæmdastjóri samtaka iðnaðarins hefur í vetur flutt erindi sem m.a. fjalla um þetta efni,
  • Síðast en ekki síst hefur Seðlabankinn ( SÍ ) kynnt skoðun sína á þessu máli og aðgerðaáætlun m.a. til að aflétta gjaldeyrishöftum. Eins og ég skil SÍ einfaldar bankinn sína afstöðu í 2 kosti:
  • o Krónu á bakvið gjaldeyrishöft, að minnsta kosti næstu 3-5 ár,
  • o Evra, eftir inngöngu í ESB.

Fyrir alla umræðu  um efnahagsmál eru hér á ferðinni grundvallaratriði, sem skipta munu sköpum um alla þróun hér á landi á næstu árum.

Rifjum upp 5 staðareyndir um heimsviðskipti sem munu einnig hafa hér mikil áhrif:

  • 1. Viðskiptahalli USA 2-6 % á ári s.l. 15 ár. USA hefur lifað um efni fram. USA$ hefur veikst mikið,
  • 2. Mikið er af óleystum vandamálum í Evrópu. Pundið er í ólgusjó svo og fjárhagur Breta. Skuldavandi ýmissa ESB ríkja er óleystur og ógnar Evru,
  • 3. Kína er að rísa upp sem efnahagslegt stórveldi. Sparnaður í landinu er mikill, peningar, sem streyma um heiminn,
  • 4. Lítið hefur áunnist í sameiginlegri hagstjórn heimsins. Mikið ójafnvægi er í kerfinu, vandi sem skapa mun nýjar bólur og kreppur,
  • 5. Vaxandi krafa um breytingar á þeim ójöfnuði lífskjara sem hefur verið milli landa og heimshluta, mun breyta öllu,

Varðandi framtíðar mynt á Íslandi má segja í einföldu máli: 

  • Krónan verður okkar gjaldmiðinn næstu 5-10 ár. Við verðum að byggja upp peningamálastjórn sem horfist í augu við þann veruleika. Stjórnmálmenn og SI verða að ganga í takt og bakka upp þessa stefnu. Það er lærdómur s.l. 10 ára. Þetta er staðreynd hvað sem líður ESB af eða á. Ein tilbrigðið við þetta stef, er einhliða upptaka annarrar myntar, sem m.a. JS vill ekki útiloka, en aðrir eru krítískari.
  • ESB og upptaka evru. Kostir sem JS og SÍ telja góðan kost, en ekki rós á þyrna. JS segir

 „Frá sjónarhóli gjaldeyrismála er evra í gegnum ESB afskaplega góður kostur. Í raun afsölum við okkur forræði yfir peningamálum og flytjum þannig inn þann trúverðugleika sem Seðlabanki Evrópu fékk í arf frá Seðlabanka Þýskalands. Vitaskuld gefum við eftir sveigjanleika. En hann er dýru verði keyptur. Fyrir hann þyrftum við áfram að greiða í formi himinhárra vaxta nema að okkur takist að fylkja okkur pólitískt á bak við aðhaldssama peningamálastefnu"

Í þessi bloggi er skautað yfir stórt mál og dregin upp einfölduð mynd.  Kostir og gallar, þessara leiða þurfa að ræðast.  Fyrrgreindir sérfræðingar hvetja einmitt til að svo verði.  Það þarf að byggja upp góðan skilning á leiðunum, ég held að tíðarandinn kalli á slík vinnubrögð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband