15.4.2011 | 10:13
Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir.
Ég hef fylgst með þessum unga manni úr fjarlægð í mörg ár. Björgólfur er án efa einn af allra reyndustu fjárfestum þessa lands. Viðskiptasaga hans er vörðuð miklum árangri og falli, eldskírn margra er starfa í viðskiptum.
Í þessari grein og á heimasíðu sinni er Björgólfur að líta yfir farinn veg og skýra sinn málstað. Mér finnst hann gera þetta vel og af fullum heilindum. Hann segir !
"Um leið ítreka ég afsökunarbeiðni mína. Íslenskt viðskiptalíf og samfélag þróaðist hratt árin fyrir hrun og sú þróun var til óheilla. Ég var í aðstöðu til að sjá hættumerki og ég sá sum þeirra, en mér auðnaðist ekki að bregðast við; í sumu gerði ég of lítið, í öðru of seint og í sumu alls ekki neitt. Ef ég og aðrir áhrifamenn í viðskiptum og stjórnmálum hefðum vaknað fyrr og okkur hefði auðnast að vinna saman hefði okkur án vafa tekist að minnka skaðann. En það tókst okkur ekki. Og á því ber ég mína ábyrgð.
Það er manndómsbragur að framgöngu þessa manns. Hann hefði getað valið þann kost að fara af landi brott og loka á allt og alla. Þetta vill hann augljóslega ekki gera hann er íslendingur, hann vill getað starfað hér og hans fólk, hann vill geta komið hingað og gengið um uppréttur. Hann segist ekki hafa gert neitt ólögleg.
Stóra spurningin er hinsvegar hvort við viljum að hann sé hér, hann geti starfað hér og hann sé tekinn í sátt. Í mínum huga er svarið einfalt. Við eigum sem kristið fólk, að geta skilið og fyrirgefið þeim sem koma fram og leita fyrirgefningar.
Um viðskiptahlið þessa máls vil ég segja. Við höfum séð hvað Björgólfur hefur áorkað. Reynsla þessa manns er gífurleg og hann hefur nú ekki aðeins átt góða tíma, heldur harðnað í eldi mótlætis. Það að við köstum þessum manni burt, eða gerum honum óbærilegt að vera hér, er því í hæsta máta óskynsamlegt.
Við höfum á s.l. 2 árum krufið hrunið og tengd mál til mergjar. Látum þá vinnu ekki verða til einskis. Verum tilbúin að draga réttar og uppbyggilegar ályktanir, fóstrum ekki neikvæðnina innra með okkur.
Hvetjum menn eins og Björgólf til að vinna hér að uppbyggingu á nýjum forsendum dagsins í dag. Aðeins þannig höfum við notað lærdóma hins liðna okkur í hag.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góð grein. Góð til umhugsunar. Já við viljum að heiðarlegt vinni sig upp úr leiðindunum..Allt of fáir eru þannig. Gefum honum tækifæri! Það gæti orðið þjóðinni til góðs. Við verðum að fara að takmarka reiðina.
Sigurbjörg Eiríksdóttir, 15.4.2011 kl. 10:20
Athyglisverð grein sem lýsir djörfum manni óráðs-elítunnar.
Flestir íslendingar nutu framan af góðs af loftkastala-hugsjóninni þannig Björgólfur á vel heima á Íslandi þótt menn kannist ekki lengur við að hafa þegið krummurnar
Njáll Harðarson, 15.4.2011 kl. 10:50
Tek ekki undir þessi orð Jón Atli. Ég myndi ráðleggja Björgólfi Thor að skila því fé til að mynda sem hann tók út úr Landsbankanum í arðgreiðslur á árunum 2007-2008.
Einnig myndi ég ráðleggja Björgólfi að láta vini sína draga til baka umsóknir um rikisborgararétt þær sem liggja fyrir allsherjarnefnd en þessir menn eru hans viðskiptamenn.
Ég myndi einnig óska þess að Samfylkingin væri ekki fyrir löngu síðan búin að kommisera Björgólf sem gullkálf til ófyrirséðrar framtíðar, má þar nefna raforkusamninga við Landsvirkjun, gagnaver á suðurnesjum, CCP ect.
Björgólfur Thor hefur ekki gefið neitt af sér hér á Íslandi og ættu menn að varast að kaupa þennan áróður hans, honum tókst ásamt nokkrum félögum að keyra þjóðina í tæknilegt greiðsluþrot.
Gunnar Waage, 15.4.2011 kl. 13:08
Þessi maður BTB sagði að honum kæmi Icesave ekkert við. Samt var hann einn stærsti eigandi Landsbankans og það á eftir að koma í ljós hvað mikið af Icesave peningunum fóru til hans og hans fyrirtækja. Ég segi eins og í Icesave kosningunum Nei BTB ég er búinn að fá nóg af þér og þinni góðmennsku. Þú skalt verða sóttur til saka og ég treysti á "sérstakan" til að koma þér og þínum líkum á þann stað þar sem þið eigið heima.
Sigurður I B Guðmundsson, 15.4.2011 kl. 15:57
Ég tek undir með Sigurði og vara við þessum fagurgala Björgólfs Thors.
Gunnar Waage, 15.4.2011 kl. 16:27
Í aldir hefur mönnum verið það ljóst að það er fljótlegt að tapa trausti en seinlegt að vinna það aftur. Að sjálfsögðu setjum við engum stólinn fyrir dyrnar í því efni en það er ástæðulaust fyrir okkur landsmenn hér á Íslandi að fara að smíða traust handa Björgólfi Thor, það er nokkuð sem hann verður að gera sjálfur.
Hrólfur Þ Hraundal, 15.4.2011 kl. 20:50
Frábær grein Jón Atli, eins og þín var von og vísa. Það er í þessum tón sem fram kemur í bloggi þínu sem ég sé framtíð Íslands hvað besta. Með kærleika og fyrirgefningu. Það hefur ekkert með það að gera að verði Björgólfur dæmdur sekur fyrir einhver afglöp sín, þá tekur hann þá refsingu.
Þegar Björgólfur ætlaði að koma með fjárfestingu hingað eftir hrun, trylltust margir á Alþingi. Flestir úr stjórnarliðinu. Hins vegar eru margir af stærstu fjölmiðlar landsins í eigu fjölskyldu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og við það gerir þetta lið engar athugasemdir. Kæmi Jón Ásgeir hins vegar með fjármagn hingað til lands til atvinnuuppbyggingar gerði ég engar athugasemdir við slíkt og til Jóns Ásgeirs ber ég engan kala.
Sigurður Þorsteinsson, 15.4.2011 kl. 23:16
Ég held að það sé rangt að lita þessa umræðu með tali um fyrirgefningu eða kala og hatur.
Það er til gott og slæmt fjármagn og það er ein leið til glötunar að taka við fjármagni hvaðan sem það sprettur upp.
Yfirleitt og oftast, jafnvel alltaf eru menn með fjármagn sitt eirnamerkt þeim verkefnum sem þeir vilja fara í. Í tilfelli Björgólfs Thors þá er hann eigandi að stórum verkefnum hér á landi, hann er eigandi Verne Holding og hefur stjórnarformaður þess fyrirtækis vakið athygli fyrir að standa í samningum við Landsvirkjun fyrir hönd VH og um leið farið fyrir stýrihópi á vegum Iðnaðarráðuneytisins.
Arðgreiðslur út úr Landsbankanum upp á fleiri milljarða til Björgólfanna árið 2007-8 reyndust ótímabærar og er það óumdeilt að ekki var nein innistæða fyrir þeim fjármunum.
Ég vil ráðleggja Björgólfi Thor að byrja á byrjuninni og greiða til baka ótímabærar arðgreiðslur inn í þrotabú Gamla Landsbankans, það væri byrjun. Sleppum tali um fyrirgefningu syndanna og læt ég hærra þenkjandi og betri mönnum en mér eftir slíkt fínerí.
Lífeyrissjóðirnir töpuðu mörgum tugum milljarða á viðskiptum sínum við eignarhaldsfélags Björgólfsfeðga; Samson. Hvernig væri að Björgólfur byrjaði á að greiða það fé til baka ?
Nei ég hef ekki heldur áhuga á fé frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni enda er það þá fé frá hrægömmum eins og Philip Green þar sem að Jón Ásgeir er lítið annað en slæmur víxill, hef ekki áhuga enda verður fé frá þessum mönnum aldrei vel varið.
Gunnar Waage, 15.4.2011 kl. 23:51
Þakka fyrir ykkar innlegg í umræðuna. Sé að ekki eru allir á eitt sáttir. Veit að þið hafi heimsótt heimasíðu Björgólfs btb.is. Sagan endaði illa það vitum við. Ég hef skilning og samúð með þeim sem hlutu af þessu skaða. Ég var hinsvegar að slá tón, eins og Sigurður Þorsteinsson bendir á.
Jón Atli Kristjánsson, 16.4.2011 kl. 19:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.