13.4.2011 | 09:51
How do you like Iceland
Við höfum einstaklega gaman af því að spyrja útlendinga þessarar spurningar. Auðvitað vitum við svarið, okkar dásamlega náttúra, okkar fallegu konur, bjart allan sólahringinn, heita vatnið, kalda vatnið, þjóðardrykkurinn svarti dauði ( black death )
Ef einhver frægur kemur og talar vel um okkur, þá höfum við eignast fyrirbrigðið íslandsvinur"
Nú fer að styttast í blessaða túristana og þá fjölgar eðlilega spurningunum how do you like Iceland Ef þú spyrð spurningar, er þá ekki alveg dásamlegt að vita nákvæmlega svarið. Ef einhver svarið þessu öðruvísi, jafnvel dónalega, er sá hinn sami dóni, bakpokalýður, xxxx á húsbíl með allan matinn með sér.
Við vorum á tímabili bjartsýnasta þjóð í heimi, í einhverri alþjóðlegri könnun. Hvernig þetta gat gerst var öllum hulin ráðgáta. Glöggir menn sáu það fyrir sér að þessi könnun hefði örugglega verið gerð, fyrir kreppu, að vori, þegar sól hækkar á himni, daginn lengir og gróður fer af stað. Jafnfram hlaut þessi könnun að hafa verið gerð í innhringingatíma á útvarpi sögu en þá eru þeir svartsýnustu meðal vor uppteknir.
Við þurfum að taka vel á móti túristunum, vera bjartsýn og kát. Ég hitti þá marga í miðbænum. Þar ganga þeir um með kortin sín, virðast alltaf vera að leita að einhverju, eða eru þeir villtir. Hvernig getur annars nokkur villst í þessari litlu borg okkar. Á kvöldin fara þeir um, stundum í flokkum, eins gott að standa saman, gegn heimamönnum.
Það er mjög göfugt markmið að hingað komi 1.000.000 túristar á ári. Ef þeir verða allir í miðborginni gæti orðið þröng á þingi. Mögulega verður hér sama þróun og víða, heimamenn flytja úr borginni á túristatímanum.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.