Eru það of margir sem stjórna !

Íslendingar eru nú ótrúlega vel að sér um tryggingarsjóði bankainnstæðna. Þeir hafa kannað allar hliðar þessa máls s.l. 2 ár. Nú hafa 60% kosningabærra manna tekið afstöðu, við borgum ekki skuldir óreiðumanna.

Það skiptir vissulega máli að taka vel ígrundaðar ákvarðanir, pæla vel í málinu. Samninganefndir sérfræðinga, sem kostuðu einhverjar hundr. milljóna, það er augljóslega ekki mikið traust á þær leggjandi.

Þegar það er rifjað upp að kostnaður sem fallið hefur á þjóðina vegna bankahrunsins er um 500 milljarðar, en fjárhæðir í Icesave er áætlaðar 47 milljarðar, þá hefur forgangsröðun mála eitthvað víxlast.

Er það mögulegt að of margir í okkar þjóðfélagi vilji stjórna hinum, hvort það er nú í já eða nei átt.  Ef engum er treystandi og allir vilja hafa hönd í bagga, gerist það eitt að allt verður þungt og svifaseint.  Við fáum sérfræðinga til að skoða alla hluti, en treystum þeim svo ekki. Við verðum að hugsa það vel, hvað á að fara alla leið til þjóðarinnar og hvað ekki.

Kemur oft í hug þessi litla dæmisaga:

Íslenskt og japanskt fyrirtæki ákváðu að keppa í róðri á áttæringi. Liðsmenn frá báðum fyrirtækjum æfðu stíft og voru í toppformi þegar að sjálfri keppninni kom.  Japanirnir unnu og urðu 1 km á undan íslenska liðinu.

Eftir útreiðina var mórallinn að sjálfsögðu heldur slæmur í íslenska fyrirtækinu og yfirstjórnin ákvað að fyrirtækið yrði að vinna keppnina að ári.  Var settur á fót vinnuhópur til að skoða vandamálið.

Eftir heilmiklar pælingar komst vinnuhópurinn að því að Japanirnir létu 7 menn róa en einn stýra.  Í íslenska liðinu var það einn sem réri og sjö sem stjórnuðu.  Vegna þessarar miklu krísu afréð yfirstjórn íslenska fyrirtækisins að fá ráðgjafarfyrirtæki til að kanna strúktúr íslenska liðsins og gera nýtt skipurit ef á þyrfti að halda.

Eftir margra mánaða vinnu komust stjórnunarfræðingarnir að því að í íslenska bátnum væru það of margir sem stjórnuðu en of fáir sem réru.  Með hliðsjón af skýrslu sérfræðinganna var strax ráðist í skipulagsbreytingar.  Í stað þess að hafa sjö stýrimenn, einn áramann voru nú hafði fjórir stýrimenn, tveir yfirstýrimenn, einn leiðtogi stýrimanna og einn áramaður.  Að auki var áramaðurinn  "mótiveraður" samkvæmt meginreglunni:  Að breikka starfssvið starfsmanna og veita þeim meiri ábyrgð".

Næstu keppni unnu Japanirnir með 2 km forskoti.

Íslenska fyrirtækið rak að sjálfsögðu áramanninn með tilliti til lélegrar frammistöðu, en greiddi bónus til stjórnarinnar vegna þeirrar miklu vinnu sem hún hafði innt af hendi. Ráðgjafarfyrirtækið gerði nú aðra úttekt og komst að þeirri niðurstöðu að valin hefði verið rétt taktík og hvatning, því væri það búnaðurinn semþyrfti að einbeita sér að.

Í dag er íslenska fyrirtækið að láta hanna nýjan bát.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Tærasta snilld!

Sigurður Þorsteinsson, 12.4.2011 kl. 08:28

2 Smámynd: Ómar Gíslason

Flott!! Góð lýsing á þjóðfélaginu.

Ómar Gíslason, 12.4.2011 kl. 13:44

3 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæll Ég tek undir með þeim hér á undan. Eitthvað hringir í hausnum á mér að við höfum setið saman í bekk í vissum skóla fyrir fimmtíu árum. En þú fljótlega hækkaður upp á annan bekk. Sértu ávallt kært kvaddur

Ólafur Ragnarsson, 12.4.2011 kl. 17:54

4 Smámynd: Hörður Halldórsson

Góð saga.

Hörður Halldórsson, 12.4.2011 kl. 18:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband