7.4.2011 | 10:58
Stórfyrirtækin okkar flytja úr landi.
Á sama tíma eru stórfyrirtækin okkar og rósir í okkar hnappagati, að flytja úr landi. Hvers vegna:
- Óvissa og hentistefna stjórnavalda, Höfum nýtt okkur allt það fólk á Íslandi sem við getum fengið segir forstjóri Actavis,
- Gjaldeyrishöft,
- Skattprósenta á fyrirtæki hefur stöðugt verið að hækka ( verður 20% ). Skattar er fjármagn sem ekki verður notað tvisvar og er þá ekki til fjárfestinga og uppbyggingar nýrra starfa.
- Tekin hefur verið upp skattur á ( fjármagnstekjur ) vexti, í núverandi árferði og stöðu mikilla skulda fyrirtækja.
Atvinna er til, atvinnulausir eru til, hvað er að?. Þeir atvinnulausu hafa ekki þá menntun eða færni sem markaðurinn þarf ?
Forystumenn stórfyrirtækjanna okkar tala enga tæpitungu um stöðu fyrirtækja sinn um hvað er að. Þeim verður ekki borið á brýn að þegja og fara. Ég er sannfærðum um að þeim finnst þessi staða ekki skemmtilega, en hvað eiga þeir að gera.
Það væri ósanngjarnt að ætla að ráðmenn, hafi ekki af þessu áhyggjur. Úrlausnir virðast ekki í boði. Þó er ljóst að núverandi skattastefna stjórnvalda, er helstefna fyrir atvinnulífið.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jón Atli, Actavis er að flytja örfáa starfsmenn úr landi til skattaparadísar í Sviss. Seðlabankinn er búinn að flytja fyrirtækið úr landi fyrir löngu vegna skulda þess, þar sem um 1.000 ma.kr. af erlendum skuldum flytjast með þessum örfáu starfsmönnum. Vissulega er eftir sjá í þeim, en ég held hreinlega að fyrirtækið hafi verið beðið um að flytja höfuðstöðvar sínar.
Skattaprósentan í Zug er 12-13% og við það keppum við ekki.
Marinó G. Njálsson, 7.4.2011 kl. 11:16
"Ríkisbankarnir" eru fullir af peningum en þeir sem vilja halda rekstri áfram í landinu fá ekki peninga þaðan. Ekki fyrr en búið er að koma öllum arðbærum fyrirtækjum í "réttar" hendur. Þetta vita flestallir og þessi þvæla um virkjanir og álverksmiðjur og raforku og bla bla bla er hugarfóstur þeirra sem ekki hafa vit á rekstri eða nenna hreinlega ekki að vinna fyrir peningunum. Það er fullt að gera í landinu. Byrja á að fullvinna sem mest af aflanum þegar við, fólkið erum búin að fá fiskinn okkar aftur.
50 cal.
Eyjólfur Jónsson, 7.4.2011 kl. 14:19
Urrrr..urrr....urrr.. Ríkistjórnin fór til vestfjarða og lofaði gull og grænum skógum. Sannarlega eiga vestfirðingar skilið að fá betri samgöngubætur, þetta lyktar af væntanlegum kosningum. Liðið hefur ekkert gert, og möguleikarnir til að ná upp atvinnustigi minnkar. Urrr..... urrrr. urrrr.
Sigurður Þorsteinsson, 7.4.2011 kl. 20:24
Marinó, það sem mér fannst sárt við þessar fréttir af Actavis, er að vöxtur fyrirtækisins verður þá væntanlega erlendis. Við vitum hver ræður för í þessu fyrirtæki í dag, og þar er engin elsku mömmu pólitík, það er alveg rétt hjá þér.
Eyjólfur þú sérð þetta með þínum augum og ég virði þín sjónarmið, þó áherslu okkar séu ekki þær sömu. Sammála þér með bankana, þeir verða að klára uppgjörmál heimila og fyrirtækja eins fljótt og verða má. Þeirra samfélagslega ábyrgð er mikil í stöðunni og þeir geta skipt sköpum í uppbyggingunni.
Siggi þetta með kosningar er skarplega athugað eins og þín er von og vísa
Jón Atli Kristjánsson, 7.4.2011 kl. 20:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.