Ríkisborgaréttur til sölu !

Auðmenn hafa sent allsherjarnefnd Alþingis beiðni um að fá flýtimeðferð á því að fá íslenskan ríkisborgararétt. Þessir aðilar vilja fjárfesta hér og almennt auðga okkar mannlíf.

Hvers vegna vilja þeir koma hingað til okkar.  Svarið er stefna okkar í umhverfismálum og afstaða okkar til stríðs, þ.e. hlutleysis stefna okkar. Að sjálfsögðu eðlilegt að spyrja um þetta í anda, „ how do you like Iceland „

Venjulegt fólk sem vill fá hér ríkisborgararétt, getur þurft að bíða í 7 ár þar til þessi réttur fæst.  Flýtimeðferð á sér hinsvegar fordæmi, og peningar tala sínu máli.

"Að sögn The Telegraph verða innleiddar sérstakar undanþágur fyrir s.k. „ofurfjárfestum" sem vilja flytja til Bretlands. Eftir því sem fjárfestarnir koma með meira fé inn í landið eiga þeir möguleika á hraðari afgreiðslu, og er miðað við nokkur þrep í lögunum. Stofni þeir breskan bankareikning með 5 milljóna punda inneign fá þeir þannig búseturétt eftir aðeins 3 ár.  Erlendir fjárfestar sem geyma yfir 10 milljónir punda í breskum bönkum fá búseturéttinn innan aðeins tveggja ára. Almennt þurfa menn 5 ár til að vinna sér inn réttinn til varanlegrar búsetu í Bretlandi."
( mbl. is )

Innlegg mitt í þessa umræðu er hinsvegar jákvætt, en ég set nokkur skilyrði:

  • Hlutaðeigandi þurfa að búa út á landi, í að minnsta kosti 7 ár. Við þurfum að efla landsbyggðina og hér virðist vera leið til þess,
  • Ég mæli með Seyðisfirði. Ég vil að þessir aðilar leggi þar peninga sína í atvinnuuppbyggingu, gerist t.d. fjárfestar í fyrirhugaðri kapalverksmiðju og fleira.
  • Sé það fyrir mér að þessir aðilar gætu með þessum hætti, eignast góða bandamenn varðandi umsóknina, þar sem Seyðfirðingar eru. Áhugi þessara aðila á umhverfismálum og friði, passar líka vel við Seyðisfjörð.

Gef mér það að þetta sé heiðarlegt og gott fólk, enda hlýtur slík könnun að vera partur af umsóknarferlinu.  Tel að við þurfum síst á því að halda að flytja inn siðblinda business menn Einhver gæti sagt að við eigum fyrir nógu marga slíka.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband