4.4.2011 | 09:20
Stjórnir fyrirtækja:
Hefðbundið er að eigendur fyrirtækisins, þeir sem leggja í það fé, ráði stjórninni. Rökin eru þau að þeir eru að hætta sínum peningum og vilja velja með sér eða fyrir sig aðila sem þeir treysta. Raunveruleikinn er einnig sá að eigendur verða að ábyrgjast með nafni sínu og eignum, skuldbindingar fyrirtækisins. Bankinn lánar ekki öðruvísi, birgjar vilja tryggingar, eigendum er flækt í reksturinn með margvíslegum hætti. Takmörkuð ábyrgð í anda laga um hlutafélög er ekki raunveruleiki viðskipta á Íslandi.
Stjórn, mönnuð samhentu og góðu fólki, er verðmæti, fyrir fyrirtækið og þá sem því stjórna. Gildi þessa verður seint ofmetið og því ætti val á stjórnmönnum fyrirtækis að vera miklu vandaðri ákvörðun en hún venjulega er. Það að reka virka stjórn, er hinsvegar mikil vinna, sem að mínu viti borgar sig. Til að stjórnin sé raunverulega virk, þarf hún að vera vel upplýst um málefni fyrirtækisins, ekki aðeins 2-3 á ári, heldur þarf hún að vera vel að sér í daglegum rekstri. Þetta kostar mikla vinnu fyrir framkvæmdastjórn, en margborgað sig, í vandaðri ákvarðanatöku.
Inn í þessa umræðu kemur fjöldi kvenna í stjórnum. Almennt segi ég það á að vera jafnvægi kynja í stjórnum. Sama má segja um aldur og menntun. Góð regla og sjálfsögð og sækir rök í lífið sjálft. Eitt af hlutverkum góðra stjórna, er jarðsamband, og skilningur á umhverfi fyrirtækisins og breytingum í því. Samband sem rofnaði.
Þegar horft er til baka virðast stjórnir almennt hafa verið of veikar, verið handbendi framkvæmdastjórnarinnar. Framkvæmdastjórnir hafa í krafti þekkingar og valds, stýrt stjórnum, og þær látið stýra sér. Síðast liðin áratugur virðist vera talandi dæmi um þetta, sérstaklega í hinum stærri fyrirtækjum.
Ég tel að við eigum að snúa af þessari braut. Stjórnir eiga að vera virkar og taka til sína það vald sem þeim var og er ætlað. Ég er sannfærðum um að þetta mun bæta gæði ákvarðatöku og rekstur fyrirtækja. Við þurfum að vera á jörðinni ekki í skýjunum.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Stjórnum er ætlað að móta stefnu, og veita aðhald. Taka stærri ákvarðanir. Því miður hafa misskilið þetta hlutverk. Talið fínt að vera í stjórn, án getu. Hlutverk stjórna er aftur að ná fyrra sessi. Lítil fyrirtæki vanmeta oft þann styrk sem góð stjórn getur gefið fyrirtækjum.
Sigurður Þorsteinsson, 4.4.2011 kl. 22:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.