Hvað er gjörhygli.

Var að læra um þetta hugtak. Gjörhygli ( mindfullness ) er að æfa sig í að verða betur meðvitaður um núið. Ekki að dvelja í fortíðinni eða gleyma sér í framtíðar pælingum. Þó þetta hugtak eigi sér uppruna í heimspeki Austurlanda, er engin þörf á trúarlegum þætti í gjörhygli.

Gjörhygli er hægt að ná í gegnum hugleiðslu, en má líka æfa í daglegu lífi.  Gjörhygli snýst ekki um eitthvað kæruleysi,  lifa aðeins fyrir daginn, og gefa frat í fortíð og framtíð. Það snýst frekar um að vera ekki alltaf að velta sér upp úr mistökum fortíðarinnar, láta það brjóta sig niður, eða af því að eitthvað mistókst muni það gerast aftur, það sé því engin framtíð.

Með því að kyrra hugann, víkja burtu neikvæðum hugsunum fortíðar og framtíðar, náum við að einbeita okkur í núinu, vera sterkari í því sem við erum að gera einmitt þá.

Nú er þetta leikmanns lýsing á fræðilegu hugtaki. Vek á þessu athygli vegna þess að við erum alltaf, hvert með sínum hætti, að berjast við okkur sjálf. Við erum daglega að gíma við okkar vandamál, suma dag allt að því óleysanleg mál.

Ef við eignumst ný og betri vopn til að hjálpa okkur í þessar baráttu erum við ríkari og færari að takast á við nýjan dag.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Þórðarson

Frábært. Eini tíminn sem í raun er til er núna og eini staðurinn er þar sem þú ert. Ef þér líður ekki vel núna, hvenær líður þér þá vel?

Er þá ástæðulaust að gera nokkuð til að undirbúa sig fyrir framtíðina (sem ekki er til)? Síður en svo. Slíkur undirbúningur gerir okkur enn frekar í stakk búin til að vera ánægð með þar sem við erum núna og leysir okkur undan truflandi áhyggjum.

Sá sem tekur til í hinu ytra gerir það líka í hinu innra.

"Two Zen monks, Tanzan and Ekido, were traveling on a pilgrimage. It was raining heavily and the streets were muddy. As the two monks neared a bend, they saw a beautiful maiden, dressed in silk and finery, standing by the bend. Being unable to cross the muddy intersection, she stood there, staring forlornly at the road ahead.

Without hesitation, Tanzan lifted the maiden in his arms. As a shocked Ekido watched, Tanzan carried the young girl over the mud and put her down at the end of the intersection.

Ekido did not speak about the incident and the monks continued on their journey. At nightfall, they reached a lodging temple. Unable to restrain himself any more, Ekido blurted out, “How could you, Tanzan! We are monks, sworn to purity! We do not go near women, especially not such beautiful, young maidens! It is risky for us monks! he reprimanded Tanzan. “Why did you do that?” Ekido further asked Tanzan.

“My friend,” replied Tanzan, “I left the girl at the intersection. However, it seems you are still carrying her!”"

Hörður Þórðarson, 31.3.2011 kl. 11:39

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Mér datt fyrst í hug orðið ,,lífmassi" sem ljóskur þessa lands nota sem möndru án hugleiðslunnar. Svo tekur þú að skýra gjörhygli sem mér finnst ágætt orð, sem ég hef ekki áður heyrt. Gjörhygli munu ljóskurnar aldrei ná að skilja, ekki frekar en lífmassa.

Sigurður Þorsteinsson, 31.3.2011 kl. 17:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband