28.3.2011 | 07:57
Kolbrún Halldórsdóttir forseti BÍL
Hún ræddi um sjálfbæra þróun, hlutverk skapandi greina, listaháskólann og þær breytingar á samfélaginu, sem hún telur sig skynja.
Hún sagðist sjá eftir kreppuna þörf fólks til að fara út í garð og róta í moldinni. Ná jarðtengingu. Neysla sé að breytast, lífræn ræktun að koma til, og meiri áhugi fyrir bættri heilsu og lífsgæðum.
Hagvöxtur t.d. 1,5% er nóg sagði Kolbrún, reyndar segi ég mjög afstætt og persónubundið , hversu mikið er nóg.
Endurhugsa þarf viðmið, peningar hafa verið eina viðmiðið og mælikvarði á gildi lífsins.
Við höfum byggt á ódýrum vörum frá Asíu. Við verðum að greiða raunkostnað vara í framtíðinni og ekki að hagnast á vanmætti og eymd annarra. Lífskjör í heiminum eru að jafnast, en lúxus vesturlanda, og sú staðreynd að ef allir eiga að hafa það eins gott og við, duga þekktar auðlindir hvergi til.
Stressið að drepa okkur. Nýja Ísland að verða til með breyttri umræðu. Listamenn og listin á að horfast í augu við raunveruleikann. Umhverfið í dag er hagstætt fyrir listir, og áhugi að aukast. Listin er leitin að sannleika, ástríða, fólkið leitar í listina.
Það þarf að hægja á lífinu og opna huganna fyrir nýjum gildum og gildismati, forgangsraða. Gangvirki lífsins, sagan, menningin, líming þjóðfélagsins.
Kolbrúna vill auka fólki bjartsýni.
Kolbrún verður að virða viljann fyrir verkið varðandi þessa endursögn mína, ef hún þá les þetta.
Ég get verið svo sammála mörgu sem hún sagði og hún flutti mál sitt afar vel og af innlifun. Henni tókst sannarlega að gera mig bjartsýnni.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
það eru mikil tækifæri fólgin í menningu og listum hér á landi held við séum bara rétt að átta okkur á því hve menningarstóriðjan er í raun orðin stór partur af atvinnulífinu og almennri veltu í t.d. þjónustugeiranum
Elfar Logi Hannesson, 28.3.2011 kl. 09:05
Það gleður mig að lesa þennan pistil. Mest gleður mig að ritari er menntaður hagfræðingur.
Hvar halda menn að dæmið endi ef: Allir taka það nú alvarlega boðskapinn :"Að hugsa globalt." Jafnframt gera kröfur um, segjum 5% hagvöxt? Vitað er að ef neysla ámóta neyslu/hagvaxtarstefnu okkar Íslendinga ætti að tíðkast "globalt" yrðum við að nema nýjar plánetur því þá yrðum við að eiga meira en tuttugufaldar auðlindir til nýtingar.
Málið er að nú vantar kjarkmikinn leiðtoga sem segir stopp! Segir stopp og bætir við að nú þurfum við að draga saman neyslu um 1/2 % á ári á mann næstu 20 árin til að byrja með!
Yrðu ekki allir ánægðir? Nei, að sjálfsögðu ekki. En kynslóðin sem fæðist 2080 yrði betur stödd.
Árni Gunnarsson, 28.3.2011 kl. 11:57
Takk fyrir þetta Árni. Ég er sammála þér um það að við sem íbúar heimsins verðum að staldra við og hugsa okkar gang. Sem betur fer eru til kjarkaðir einstaklingar og rödd breytts hugarfars heyrist víða.
Góð spurning er, hefur sífellt meira og meira fært okkur meiri hamingju ?
Jón Atli Kristjánsson, 28.3.2011 kl. 17:43
Þessir þættir kl. 9 á sunnudagsmorgnum eru afar áhugaverðir. Kolbrún Halldórsdóttir sem var farin að virka þreytt á Alþingi, var mjög áhugaverð. Þú setur þetta viðtal í skemmtilegt sviðsljós.
Sigurður Þorsteinsson, 29.3.2011 kl. 06:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.