Ég vil ekki að neinn tékki út úr mínu tékkhefti, án þess að spyrja mig!

Einn af góðum vinum mínum notar oft þetta orðalag og verður alltaf jafn reiður þegar hann segir þetta. Hvað á hann við:
  • Gengisfellingin 2009- hrunið, þegar allt hækkaði um 100%,
  • Skattahækkanir, hækkuð þjónustugjöld, niðurskurður á öllum sviðum,
  • Hagsmunapot, vegagöng á landsbyggðinni, greiðsla málsvarnarlauna bæjarfulltrúa í Kópavogi.

Hann var ekki spurður um neitt af þeim útgjöldum, sem liggja að baki þessara hamfara, honum er hinsvegar sendur reikningurinn, það er tékkað úr hans tékkhefti án þess að spyrja hann.

Nú er þessi vinur minn ekki ósanngjarn maður, hann er vitur og passasamur um öll sín mál.  Hann borgar glaður skatta, er fara til góðra mál, skóla, heilsugæsla, löggæsla.  Honum dytti ekki í hug að umgangast annað fólk með þessum hætti, sem hér er lýst. Þess vegna hefur hann fullan rétt til að spyrja hvers vegna er farið svona með mig ?

Er ekki líklegt að margir hugsi svona. Hugsi með sér, það er einhvernvegin ekkert réttlæti í þessu. Ég skil alveg að eldgos og mögulegt tjórn, sé eitthvað sem við verðum að leysa sameiginlega, en þessi naglasúpa sem var hér kokkuð, nei takk.

Ég held að hörð viðbrögð í Icesave málinu, séu af þessum rótum.  Reyndar hörð viðbrögð við öllum úttektum af tékkheftinu.  Ráðamenn þjóðarinnar standa frammi fyrir þeim mesta upplýsinga- og útskýringavanda sem þeir hafa staðið frammi fyrir.  Skýringin í dag má ekki vera, af því bara, það þarf að vera meira kjöt á beinunum. Séu deilur um málið, aukast kröfurnar um rökstuðning.

Mér finnst einn stjórnmálamaður meirihlutans, Steingrímur J Sigfússon, skilja þetta og vera að reyna að tala við okkur eins og fólk. Ég vona að hann gefist ekki upp á því !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Hvort Steingrímur virðist eða ekki vera að tala við okkur eins og fólk, þá er ekki þar með sagt að við verðum leyfa það að endalausir gúmmítékkar verði skrifaðir út rétt sisvona "afþví bara" Steingrímur vill það og er það ekki nóg sem svar???

Ég samþykki ekki að tékkað verði út úr mínu hefti og þar við situr. Ef ég á ekki að þurfa að greiða gjaldið þá skal sá er skrifaði upprunalega uppá það greiða.

Það kæmi þér ekki til hugar að greiða víxilinn minn af því ég gat ekki borgað hann, enda átt þú ekki að borga hann. Það er það sama hérna meginn. Það voru aðrir sem skrifuðu uppá víxilinn og það eru þeir sem skulu standa skil á honum. Ég kom þarna hvergi nálægt og mér ber því ekki að hleypa neinum í mitt tékkhefti til að skrifa út fyrir því sem ég á ekki að greiða.

Með kveðju á mannamáli

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 24.3.2011 kl. 11:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband