15.3.2011 | 09:39
Upprifjun um efnahagsmál í dag - gagnrýni.
Það sem stendur upp úr í dag í efnahagsmálum Íslands er að sjálfsögðu þessi mikla efnahagskreppa sem þjóðin er í og sem er örugglega sú dýpsta og alvarlegasta á lýðveldistímanum. Upphaf hennar er bankahrunið 2008 en því miður hefur það gerst að efnahagsstjórnin í framhaldinu og fram á þennan dag hefur gert illt verra. Í stað þess að skapa efnahagsleg skilyrði fyrir skjótum bata hafa stjórnvöld kosið að grípa til ráðstafana sem beinlínis stuðla að áframhaldandi efnahagskreppu. Þau hafa hækkað skatta stórlega og hóta frekari hækkunum, þau halda uppi gjaldeyrishöftum, koma í vega fyrir stórframkvæmdir á orkusviði og tala um atvinnurekendur og frumkvöðla upp til hópa sem braskara og vonda pappíra. Þau hafa stóraukið ríkiseign og ríkisrekstur og reyna nú nánast að þjóðnýta sjávarútveginn eins og orkuiðnaðurinn er nú að mestu þjóðnýttur. Í stað þess að spara hafa stjórnvöld ríghaldið í dýrt og óhagkvæmt velferðarkerfi sem þjóðin hefur ekki efni á og bjóða háar atvinnuleysisbætur miðað við markaðslaun, sem beinlínis letur fólk frá því að leita sér vinnu. Með framhaldi þessarar stjórnastefnu eru efnahagshorfur slæmar svo ekki sé meira sagt." ( Ragnar Árnason F.V 7 tölubl. 2010 )
IMF spáði því 2008 m.v. langa reynslu af kreppum, að á Íslandi myndi eftirfarandi gerast. Þjóðarframleiðslu myndi dragast mikið saman 2009 - 2010 en þá myndi fara að rofa til. Samdrátturinn þýddi að 20.000 störf töpuðust. Vandi dagsins í dag er hinsvegar að engin hagvöxtur er í spilunum. Ástæðan er sú að skattar eru háir, sem draga peninga út úr hagkerfinu. Eina leiðin til að örva hagvöxt er að fá í gang fjárfestingar, innlendar eða frá útlöndum, aukin einkaneysla mun ekki draga vagninn. Við þurfum aukna verðmætasköpun, sem er afsprengi, aukinna fjárfestingar og framleiðni. Skatta og atvinnustefna stjórnvalda er að kyrkja mögulegan hagvöxt." ( Bjarni Benediktsson á fundi í Kópavogi 12.3.2011 )
Skýrir kostir og samhljómur er í skoðunum þessara heiðursmanna. Boðskapur sem á erindi við kjósendur enda margir sem telja kosningar á næsta leiti. Fróðlegt verður að fylgjast með á næstu vikum hvort kosningahljóð er að komast í strokkinn.
Þá mun gilda að ná til 40% þjóðarinnar, sem vantreystir gömlu flokkunum, og vill eitthvað nýtt. Hvað skyldi Sjálfstæðisflokkurinn eiga af þessum 40% stabba.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég upplifi að það sé farið að þrengja mjög víða að. Svo að viðspyrnan verði sífellt erfiðari. Frábært innlegg að vanda.
Sigurður Þorsteinsson, 15.3.2011 kl. 21:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.