12.3.2011 | 22:53
Viltu ekki lækka launin mín please !
Til upprifjunar segir í frétt mbl. 16.1.2009
Samkomulag hefur náðst á milli forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar og fjármálaráðherra, Árna M. Mathiesen, um að laun forseta verði lækkuð á sama hátt og laun forsætisráðherra, eins af handhöfum forsetavalds, enda segir í úrskurði Kjararáðs að forseti geti sjálfur óskað eftir slíku við fjármálaráðherra.
Laun forsætisráðherra voru lækkuð um 15% og samkvæmt því munu laun Ólafs Ragnars lækka úr rúmum 1.827 þúsund krónum á mánuði í rúmar 1.553 þúsund krónur.
Eins og greint var frá á mbl.is hafnaði Kjararáð ósk Ólafs Ragnars um að laun hans verði lækkuð á sama hátt og laun forsætisráðherra og forseta Alþingis, handhafa forsetavalds. Sagði Kjararáð að slík launalækkun sé óheimil samkvæmt stjórnarskrá.
Ráðið tók ekki afstöðu til þess hvort forsetinn gæti sjálfur afsalað sér hluta launa sinna, tímabundið eða varanlega, með tilkynningu til fjármálaráðherra, líkt og nú hefur verið gert.
Nú verður fyrst og fremst að líta á þessa umræddu launalækkun sem symbólska. Kreppan blasti við og allir þurfa að standa saman. Það að lækkun launa forsetans um kr. 270.000 á mánuði hefur ekki skipt hann sköpum, eða þjóðarhag. Hann er vel giftur og gæti brugðist við með því að biðja konuna um að kaupa í matinn í nokkur skipti.
Nú standa fyrir dyrum almennir kjarasamningar. Ekkert er til skipta, allir kassar tómir, tillögur um að hækka lægstu laun um kr. 50.000 á mánuði, eru ekki til umræðu vegna stöðu atvinnuveganna. Það þarf líka að fjármagna greiðslur til hinna atvinnulausu.
Í þessu ljósi verðu þessi deila, helst dapurlega eða mögulega hlægileg. Það er alveg ljóst að fjöldi einstaklinga og fjölskyldna er í þeirri stöðu að kr. 10-20.000 á mánuði skipta máli. Hækkanir nánast alls hafa bæst við framfærslu um hver mánaðarmót að undanförnu og má þar t.d. nefna bensín, og ýmsar nauðsynjar.
Mest hætta liggur í því að stórir hópar missi vonina, vonina um að sjá sér farborða. Hinn margumtalaði fjárhagsvandi heimilanna, að geta ekki staðið í skilum með húsnæðislán, er mögulega að breyta um form og verða framfærsluvandi. Það þýðir þá minni peningar í lánin, vandinn hefur bitið í skottið á sér.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Nú þegar Jóhanna telur að fjölmiðlar komist það að hún lækkaði ekki handhafaþóknun sína í samræmi við ákvörðun Ólafs, reyndir Hrannar fjölmiðlafulltrúi að búa til enn einn spunann og hann er sannarlega aðhlátursefni. Sagt er að Hrannar hafi verið dulklæddur hjá Fjölskylduhjálpinni við síðustu úthlutun og hvíslað, einn poka fyrir mig og einn fyrir Jóhönnu.
Sigurður Þorsteinsson, 13.3.2011 kl. 07:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.