10.3.2011 | 11:23
Menn og málleysingjar með tannpínu.
Nú voru góð ráð dýr, hann varð að komast til tannlæknis. Hann fann á netinu tannlækna sem áttu að vera á helgarvakt. Hann hringdi í marga tannlækna á lista sem hann fann og fékk þá að vita að helgarvaktir væru aflagðar, þetta hefði verið sjálfboðavinna.
Félagi minn, náði sjálfur að kraka burtu tannbrotið sem eftir var. Hann þjáðist mikið alla helgina og kvalastillandi töflur dugðu skammt. Á mánudag náði hann í tannlækni sem var tilbúinn að hjálpa honum.
Þessi tannlæknir sagði honum reyndar að hann væri óheppinn að vera ekki ferfætlingur, hestur eða kú, því að það væri dýralæknir á vakt allar helgar, launaður af ríkinu !!
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 42827
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Síðast þegar ég fór með tíkina mína hana Söru í neyðarskoðun, var það ekkert mál. Það hvar hins vegar verra mál fyrir fressköttinn sem fékk flís í löppina, hann fékk lækningu en vanaður í leiðinni. Skipun frá Guðríði Arnardóttur í Kópavoginum. Fressið var utandyra án þess að vera í bandi. Ég vil frekar vera með tannpínu alla helgina, heldur en að fara til tannlæknis utan hefðbundins tíma. Sérstaklega ef ég hef ekki verið í bandi.
Sigurður Þorsteinsson, 11.3.2011 kl. 14:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.