8.3.2011 | 08:19
Stjórnmálamaður með hugsjónir
Hanna Birna Kristjánsdóttir oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík var í morgun sunnudag 6.3 í viðtali á RÚV.
Hanna Birna er kona með skoðanir og hugsjónir um breytingar í stjórnmálum. Gaman að hlusta á stjórnmálamann með hugsjónir, svona til tilbreytingar, frá þessum endalausu spjallþáttum.
Hanna Birna þarf að setja hugmyndir sínar á blað, hafi hún þá ekki gert það áður og þau skrif farið framhjá mér. Ekki síst fyrir framtíðarnefnd flokksins. Skrifin væru þá um borgarstjóra tíð hennar og þá tilraunastarfsemi í stjórnmálum sem þá var reynd.
Ekki ætla ég mér þá dul, að endursegja það sem hún sagði í þessum þætti. Í stuttu máli finnst mér það vera:
- Stjórnmálamenn eiga að brjótast út úr þröngri flokkshyggju, og vera óhræddir við breytingar, þvert á flokkslínur,
- Upplýsingar, grunnur ákvarðatöku, eigi að vera öllum aðgengilegur, meiri og minnihluta. Engin leyndarmál,
- Það jákvæða sem vinnst með slíkri samvinnu, bætir margfalt upp þá mögulegu pólitísku ókosti, er kunna að felast í því, að málefnastaða flokkanna er ekki eins skýr í augum kjósandans.
Þetta var skemmtilegur þáttur og ástæða til að benda á hann, fyrir áhugafólk um stjórnmál.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 42826
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hanna Birna er sannarlega óvenjulegur stjórnmálamaður. Nú þegar gríninu er lokið, þá sjá menn að hún var tvímælalaust besti kosturinn.
Sigurður Þorsteinsson, 8.3.2011 kl. 16:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.