4.3.2011 | 23:44
Er allt leyfilegt í ástum og pólitík ?
Jóhann fékk 76 atkvæði til formanns, en Þórður Ó Þórðarson lögfræðingur 89 atkvæði. Öllum sem fundinn sóttu var ljóst að á hann hafði verið smalað Þar sáust andlit sem lítin þátt hafa tekið í flokksstarfinu til þessa.
Þórður, nýkjörinn formaður er ekki þekktur í flokknum. Þar fer hinsvegar góður maður og er honum óskað alls hins besta í starfi sínu. Hann flutti á fundinum góða framboðsræðu, og ef hann sendur við aðeins brot af því sem hann lofaði þar, mun flokkurinn vinna stórsigur í næstu kosningum.
Stuðningsmenn Jóhanns voru eins og fyrr greinir fjölmennir á fundinum. Í þeim hópi er traustur kjarni flokksins sem á undanförnum árum hafa borið uppi flokksstarfið. Þessi kjarni gekk mjög sár af fundinum. Þeir sem tóku við keflinu hafa sannarlega verk að vinna.
Sigurvegarar þessara kosninga í Sjálfstæðisfélaginu, brutu engin lög flokksins, þeir einfaldlega smöluðu sínum stuðningsmönnum, af kunnáttusemi og þekkingu á slíkum vinnuaðferðum. Vissulega harkalegar aðferðir, því engin tilraun var gerð til að viðhafa mildari aðferðir við breytingar, þarna voru stálin stinn. Liðið nestað með miðum um hvernig átti að kjósa í allar stöður.
Sigurvegar kvöldsins glöddust, sigur var í höf. Sigurvegarinn þarf þó alltaf að lifa nýjan dag, standa við stóru orðin og vona að þeir sem töpuðu gleymi fljótt.
Tvær fylkingar hafa tekist á innan Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Oddviti flokksins telur örugglega að hann hafi á fimmtudaginn styrkt stöðu sína. Hann hafi sent hópi gagnrýnenda sinna skilaboð um það hver ræður, gagnrýni sé ekki velkomin. Sá forystumaður, sem ekki hefur skilning á því að í húsi Sjálfstæðisflokksins, verða að vera mörg herbergi, verður ekki langlífur á þeim stóli. Haldi hann að allt sé leyfilegt í ástum og pólitík, þá kunna aðrir að álíta annað.
Fráfarandi formaður Jóhann Ísberg hefur staðið sig frábærlega. Hann hefur verið hornsteinn flokksstarfsins. Hann hefur sýnt einstaka hæfileika til að fá fólk til starfa fyrir flokkinn og halda saman þessu liði ( köttunum ) Hann hefur sýnt það að hann er mjög fær félagsmálamaður, duglegur með afbrigðum, og hefur fórnað miklum tíma fyrir starf og hugsjónir Sjálfstæðisflokksins. Hann þekkir öll mál Kópavogs mjög vel, eftir langt starf í nefndum bæjarins, þekking sem leiðtogar í pólitísku starfi þurfa hafa, og verður aðeins byggð upp á löngum tíma og af einurð og áhuga. Jóhann Ísberg á miklar þakkir skilið fyrir sitt mikla starf fyrir flokkinn. Megin honum vel farnast í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 42826
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Snilldarinnlegg.
Sigurður Þorsteinsson, 5.3.2011 kl. 14:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.