28.2.2011 | 08:43
Ráðstefna um lifandi aðlindir hafsins.
14 áhugaverðir fyrirlestrar voru fluttir á ráðstefnunni. Megin þema hennar var langtíma stefnumótun og aflaregla. Vissulega áhugavert efni og stendur nánast sjálfstætt þrátt fyrir deilur um aflamarkskerfið, þ.e. með hvað hætti við veiðum það magn sem má veiða. Það sem mér fannst áhugaverðast var:
- Erindi Steve Murawski um bandaríska fiskveiðistjórnunarkerfið. En innan þess kerfis eru menn að stjórna 500 tegundum. Þeir hafa um langan aldur notað togararall eins og við til að afla upplýsinga um afla á ákveðnum svæðum,
- Erindi, Friðriks Más Baldurssonar, og Daða Más Kristóferssonar, sem bæði lýstu mikilli þekkingu og fræðimennsku. Daði flutti erindi sitt af miklum krafti og var áheyrilegur,
- Þeir sérfræðingar HAFRÓ sem þarna töluðu, Einar Hjörleifsson, Björn Ævar Steinarsson og Jóhann Sigurjónsson, sem þarna töluðu sannfærðu mig um þá miklum vísinda- og fræðilegu vinnu sem unnin er á þessari stofnun,
- Þarna töluðu einnig Eggert B Guðmundsson frá HB Granda og Sveinn Margeirsson frá Matís, fulltrúar þess sem er að gerast hjá fyrirtækjunum.
Lykil hugtak þessara ráðstefnu var sjálfbær þróun og krafa um langtíma stefnumótun. Ástand helstu stofna er mjög ásættanlegt og hægfara uppbygging hefur verið. Vísindaleg þekking og upplýsingar hafa verið að aukast, þó að þar megi alltaf gera betur.
Fram kom að markaðir eru að breytast og vottorða er krafist um sjálfbærni og rekjanleika vörunnar á öllum stigum.
Sú mynd sem dregin var upp á þessari ráðstefnu er mynd af góðu búi og notkun vísindalegra vinnubragða við stjórnun þessara auðlindar. Reyndar var ein af grundvallarreglu vísinda brotin á ráðstefnunni, en það er gagnrýnin hugsun. Það er öllum ljóst sem fylgjast með þessum málum að núverandi kerfi fiskveiðistjórnunar hefur verið gangrýnt og að margra áliti með gildum rökum. Ekkert var rætt um þetta mál.
Ráðstefnan var mjög þarft innlegg í umræðu um sjávarútvegsmál. Það er nóg af öfgafullri umræðu um sjávarútvegsmál, umræðu sem er í formi upphrópana og ómálefnalegrar rökræðu.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.