25.2.2011 | 12:34
Pólitík og keppnisíþróttir
- 1. Skilgreindur hópur kvenna eða karla,
- 2. Starfsemin skýr, fótbolti, handbolti,...
- 3. Leikreglur skýrar og dómari sem fylgist með að reglur séu haldnar,
- 4. Stefnumótun skýr, í hvaða anda er unnið, hlutverk, markmiðasetning er klár, fyrir liðið, og fyrir einstaklinga, ( vinna ) , áætlanir, leikkerfi eru byggð upp ofl.
- 5. Agi er mikilvægur innan vallar sem utan. Agabrot varða viðurlögum, eins og t.d. að vera úthýst úr hópnum. Vald þjálfara eða framkvæmdastjóra er klárt og virt af öllum hópnum,
- 6. Félagsleg og fjárhagsleg staða hópsins og einstaklinga innan hans er skýr.
Stjórnmálamenn taka oft dæmi úr íþróttum og ekki er nokkur vafi að stjórnmál og stjórnmálaflokkar geta margt af íþróttunum lært.
Tökum smá samanburð:
3) Það eru leikreglur í stjórnmálaflokkum. Þar vantar hinsvegar sárlega dómara, þessi hópur fer sínu fram.
4) Segjum að markmiðssetning sé í lagi í pólitíkinni. Leikkerfi íþróttanna gera markmiðin framkvæmanleg. Allir leikmenn vita hvað þeir eiga að gera, ef keyrt er ákveðið kerfi t.d. að skora eða verjast.
Þarna vantar uppá hjá stjórnmálaflokknum í öllum atriðum. Kerfin til að ná til flokksmanna eða almennings eru veikburða og gamaldags. Hlutverk hvers og eins er illa skilgreint.
5) Háttsemi innan og utan vallar og agabrot. Djúpur skilningur er í íþróttum hvað þetta þýðir fyrir einstaklingana og liði. Hjá stjórnmálaflokkum er þetta alveg í molum, hver hagar sér í stórum dráttum eins og hann vill. Háttsemi sem kann að sverta heildina, er meðhöndlað eins og einkamál hlutaðeigandi. Vald eða valdbeiting sjaldan notuð og úrræði alltof fá, ef menn vilja beita sér.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.