21.2.2011 | 10:18
Hið augljósa í pólitíkinni.
Í Silfri Egils, biðlar Sigmundur Ernir til afla á þingi að sameinast um nýja stefnu í atvinnumálum, því ríkisstjórnarflokkarnir nái þar ekki saman. Hart er að mönnum gengið þegar þetta er opinberað.
Ljóst er af þessum dæmum, sem gætu verið fleiri, að núverandi stjórn er lömuð. Hún kemur málum ekki í gegn, ein og óstudd.
Báðir stjórnarflokkar eru hinsvegar sammála um að kosningar koma ekki til greina, sitja skal meðan sætt er. Láir þeim það enginn, skoðanakannanir segja þar sína sögu. Reyndar sögu mikillar óvissu og glundroða, þar sem stór hópur kjósenda er óákveðinn. Viss spenna er í loftinu og stóra spurningin, er pláss - áhugi á nýju framboði, eitthvað Besta flokks dæmi.
Þó ég sé einlægur talsmaður þess að kjósa strax til Alþingis vildi ég vegna alvöru málsins benda á nýja leið.
Hið augljósa í þessari stöðu er, að Alþingi vinni á næstu mánuðum eins og ekki sé meirihlutastjórn. Leitað sé eftir þverpólitískum meirihluta um einstök mál, án tillits til flokka eða flokkshagsmuna. Tökum nokkur mál sem má klára fljótt:
- Sjávarútvegsmál, samþykkja sáttaleiðina. Tryggur þingmeirihluti er fyrir þessu máli. Mikil hætta er á því að fyrirhugað framvarp sjávarútvegsráðherra verði útvatnað sull og ónothæft.
- Auðlindamál, breið sátt er um grundvallaratriði þessara mála. Sníða þar af ákveðna galla í núverandi löggjöf t.d. um tímaramma nýtingaréttar.
- Almenn atvinnumál, aðgerðapakkar. Mikill meirihluti er fyrir öflugum aðgerðum og að brjóta upp neitunarvald VG í þessum málum.
- Framtíðarlausn varðandi gjaldmiðil þjóðarinnar. Breið samstaða er um að finna lausn þessara mála. 60% atvinnurekenda er á móti núverandi krónu. Launþegasamtökin geta tæplega verið sátt við stöðu mála.
- Listi mála er allir flokkar gætu sæst á er miklu lengri.
Almenningur er farinn að finna verulega fyrir kreppunni. Skattar hafa hækkað, svo og allt verðlag. Atvinna hefur minnkað. Allt þetta hefur skert ráðstöfunartekjur heimilanna mikið. Aukin umsvif í þjóðfélaginu og aukin bjartsýni, er því lífsspursmál. Þjóðin er sérfræðingur í að takast á við vanda og er tilbúinn að leggja mikið á sig. Forsenda þess er þó aukinn vinna, leiðin sem við beitum alltaf og teljum ekki eftir okkur, vinna meira - vinna sig út úr vandanum.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jón Atli aðgerðarlistinn er góður en ég óttast að meðan þessi stjórn situr gerist ekkert. Hindranir innan stjórnarflokkana komi í veg fyrir alla atvinnuuppbyggingu.
Sigurður Þorsteinsson, 22.2.2011 kl. 09:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.