18.2.2011 | 09:50
Kúnstin að opna dyr.
Það eru margir í dag ekki að nota rétta lykilinn. Rétti lykillinn er til, og það hefur ekki verið skipt um skrá.
Datt í hug þessi inngangur á því að kynna fyrir ykkur, þau frábæru samtök, Hugarafl
Hugarafl var stofnað í júní 2003 af notendum í bata, sem átt hafa við geðræna erfiðleika að stríða og iðjuþjálfum með víðtæka reynslu af geðheilbrigðismálum. Hópurinn starfar við miðstöðina Geðheilsa-eftirfylgd/iðjuþjálfun í Álfabakka 16, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis.
Hópurinn starfar samkvæmt hugmyndafræði valdeflingar(empowerment) og öll vinna fer fram á jafningjagrundvelli. Meðlimir Hugarafls vilja miðla reynslu sinni af geðheilbrigðiskerfinu með öðrum sem láta sig málefnin varða, hópurinn vill hafa áhrif á þjónustu og varpa ljósi á batahvetjandi leiðir. Það hefur sýnt sig að aukin virkni og þátttaka leiðir til þess að fólk nær betri tökum á eigin lífi.
Markmið Hugarafls er að vinna að verkefnum sem geta bætt geðheilbrigðisþjónustu, miðla notendasýn, vinna að verðmætasköpun, skapa hlutverk og vinna gegn fordómum með sýnileika og stuðla að atvinnusköpun með því að þróa þjónustu út frá reynslu notenda.
Hugarafl hefur staðið fyrir notendakönnun á geðsviði Landspítala Háskólasjúkrahúsi þ.e. "Notandi spyr Notanda", haldið málþing og ráðstefnur, tekur reglulega þátt í kennslu lækna- og iðjuþjálfanema, vinnur við að þróa tenglakerfi, gefur út bæklinga og starfar við þýðingar á batahvetjandi fræðsluefni fyrir notendur og aðstandendur þeirra, svo dæmi séu gefin. Vegvísir Hugarafls hefur verið gefin út þrisvar sinnum og er upplýsingabæklingur um þjónustu fyrir geðsjúka og hvarvetna hlotið mikla athygli."
Hugarafl og það frábæra fólk sem þar vinnur hefur komið inn í mína fjölskyldu með nýja sýn og von. Samtök sem hægt að mæla með við alla, sem glíma við læstar dyr geðheilbrigðis.
Um bloggið
Jón Atli Kristjánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Var bent á þessi samtök þegar góður vinur minn virtist ekki í nein hús að venda. Það þarf góðan hóp til þess að styrkja þetta frábæra starf enn frekar.
Sigurður Þorsteinsson, 19.2.2011 kl. 23:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.