Okkar öryggi ?

Í 50 ár höfum við lifað sæl og örugg undir verndarvæng Bandaríkjanna og NATO. Við höfum ekki bara notið öryggis heldur beinlínis grætt peninga á öllu saman. Þetta hefur verið mikil „guðsblessun og lán", á meðan aðrar þjóðir hafa kostað stórfé til varna sinna, flestar undan blóðugum nöglunum.

Þess vegna bregður okkur við, þegar bandaríkjamenn ákveða einhliða að fara heim og skilja okkur ein eftir. Hlutverki okkar var lokið, hættan úr Austri, var ekki sama hættan og áður.

Hin raunverulega hætta í Austri, er að Rússar og allt þeirra gamla kjarnorku drasl mengi láð og lög hér í Norðrinu.

Að NATO þjóðin Frakkar, smíða herskip fyrir Rússa, er tímanna tákn. Þessi skip verða búin öllum þeim nýjasta búnaði sem til er.  Vonandi ganga Rússar alla leið og gerast aðilar að NATO.

Í dag höfum við engar varnir, nema þá sem felast kann í NATO aðild. Hvað NATO er að gera í Afganistan, er ofvaxið mínum skilningi, sérstaklega þegar nafn og tilgangur þessara samtaka er skoðaður. Að danskir hermenn séu drepnir í þessu skelfilega stríði, hlýtur að vekja endalausar spurningar hjá frændum okkar Dönum,

Staða okkar Íslendinga er sú að við höfum sjálfir ekki efni á neinum vörnum. Höfum lagt niður Varnarmálastofnun, sem var vísir að einhverju sem kalla má skipulag okkar varna.

Umræða, ef hún fer fram, er dulbúin yfirhilming  yfir blankheit okkar og er  kölluð endurmat á varnarþörf okkar. Vissulega er, þessa dagana, litlar líkur á stríði í okkar heimshluta.  Hættur sem að okkur steðja eru vissulega aðrar en var. Hryðjuverk, tölvuárásir eru á list yfir raunhæfar ógnir.  Mögulega má lýsa stefnu okkar, með mjög séríslenskum hætti, það flýtur með ekki sekkur, og þetta mun reddast.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jón Atli Kristjánsson

Höfundur

Jón Atli Kristjánsson
Jón Atli Kristjánsson
Höfundur er menntaður hagfræðingur, starfandi rekstarráðgjafi, uppalinn á Akureyri með sterkar rætur í Kópavogi.  Íþróttamaður og mikill áhugamaður um þjóðfélagsmál. Kvæntur og  faðir 2ja uppkominna barna.
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • Capture Orka
  • Capture Orka
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • Lítil og stór fyrirtæki
  • mynd

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband